Alfa Framtak hefur gengið frá kaupum á 100% hlut í Hótel Höfn og 50% hlut í Hótel Hamri. Samkeppniseftirlitið samþykkti kaupin í lok júní og kaupin gengu í gegn um miðjan júlí.
Fjárfestingin var gerð í gegnum um sjóðinn Umbreytingu II slhf. og eignarhaldsfélagið AU 23 ehf. Sjóðurinn segist vera með fleiri hótelverkefni til skoðunar og telur langtímahorfur í ferðaþjónustunni góðar.
Jökull Fjárfesting ehf. keypti Hótel Höfn hótelið árið 2016 og vann að miklum endurbótum á bæði rekstri og húsakosti.
Hótel Hamar er staðsett við golfvöllinn í Borgarnesi og var að fullu í eigu hjónanna Sigurðar Ólafssonar og Ragnheiðar K Nielsen, en Umbreyting II slhf. keypti 50% eignarhlut í gegnum um eignarhaldsfélagið AU 23 ehf.
„Ferðaþjónusta er undirstöðuatvinnugrein á Íslandi sem hefur einnig þá sérstöðu að skapa fjölbreytt bein og afleidd störf víðs vegar um Ísland. Að mati Alfa Framtaks eru langtímahorfur góðar og þarf atvinnugreinin á fjárfestingu að halda til þess að geta annast þá miklu spurn sem er eftir því að heimsækja landið okkar,“ segir í tilkynningu.