Tekjur Alfreðs ehf., sem heldur úti atvinnuleitarmiðli og hefur þróað kerfi fyrir fyrirtækja í kringum starfsauglýsingar og ráðningar, námu 654 milljónum króna árið 2024 og jukust um 3,4% á milli ára.

Félagið hagnaðist um tæplega 122 milljónir króna eftir skatta í fyrra samanborið við 163 milljónir árið 2023. EBITDA-hagnaður félagsins dróst saman um 22,8% og nam 155 milljónum.

Alfreð atvinnuleitarmiðlinn fór í loftið árið 2013. Félagið hefur á síðustu árum verið að hasla sér völl á erlendri grundu og er komið með starfsemi í Tékklandi, Færeyjum og á Möltu.

Alfreð gef út nýtt app, Giggó, í byrjun síðasta árs en forritinu er ætlað að hjálpa íslensku „gigg-samfélagi“. Í Giggó geta einstaklingar og fyrirtæki sett inn smáauglýsingar um verkefni sem þarf að vinna og verktakar geta boðið sig fram í verkið.

Eignir Alfreðs voru bókfærðar á 397 milljónir króna í árslok 2024 og eigið fé var um 296 milljónir. Stjórn Alfreðs lagði til að greiddur verði út allt að 100 milljónir króna í arð vegna rekstrarársins 2024, að því er kemur fram í ársreikningi félagsins.

Halldór Friðrik Þorsteinsson og Vernharður Reynir Sigurðsson eru aðaleigendur Alfreðs með sitthvorn 48,7% eignarhlut í félaginu.