Alfreð atvinnuleitarmiðillinn hefur tekið til starfa á Grænlandi. Þar má núna opna atvinnuleitarappið og vefinn á grænlensku, dönsku eða ensku. Fyrstu starfsauglýsingarnar eru komnar í birtingu og ráðningarkerfið klárt í að taka við umsóknum.

Auk Íslands er þjónusta Alfreðs í boði í Tékklandi, á Möltu og í Færeyjum.

„Alfreð fékk góðar móttökur í Færeyjum og því lá beint við að kanna hvort Grænlendingar vildu nýta sér þjónustu okkar,“ segir Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs, í tilkynningu.

Fram kemur að grænlenski athafnamaðurinn Svend Hardenberg hafi séð tækifæri í Alfreð í heimalandi sínu. Hann hafi látið að sér kveða í pólitík og fyrirtækjarekstri en sé sennilega frægastur fyrir að leika grænlenska utanríkisráðherrann Hans Eliassen í dönsku sjónvarpsseríunni Borgen. Núna hefur hann gert sérleyfissamning við Alfreð um að þjónusta atvinnulífið á Grænlandi.

„Áhuginn á Grænlandi og grænlensku atvinnulífi hefur sjaldan verið meiri en núna,“ segir Svend Hardenberg. „Það má gera ráð fyrir að þessi athygli skili sér í auknum umsvifum, t.d. í ferðaþjónustu.“

Svend Hardenberg og Anna Katrín Halldórsdóttir.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Alfreð segir að það hafi kostað talsverða vinnu að snúa auglýsinga- og ráðningarkerfi Alfreðs yfir á grænlensku og dönsku en nú hafi árangur erfiðisins litið dagsins ljós.

„Núna þegar Alfreð er kominn til Grænlands þá má með sanni segja að við séum vinsælasta atvinnuleitarapp í Norður-Atlantshafi,“ segir Anna Katrín.