Allt erlent starfsfólk Festi mun fá aðgang að starfstengdri íslenskukennslu en samstæðan er hundraðasta fyrirtækið sem býður starfsfólki aðgang að íslenskukennslu með aðstoð Bara tala.

Festi rekur 200 starfsstöðvar hringinn í kringum landið en starfsfólk samstæðunnar telur er um 2.600 manns á öllum aldri og yfir 60 þjóðernum.

„Samstarfið við Bara tala hefur verið einstaklega ánægjulegt og við erum stolt af því að geta stutt vel við starfsfólk sem er að læra íslensku og aðstoða það við að aðlagast íslensku samfélagi,” segir Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Festi.

Hún segir tungumálið lykilinn að því að efla þátttöku og tengsl erlends starfsfólks í íslensku samfélagi og því stuðli samstarfið að auknum lífsgæðum starfsfólks.

„Þetta samstarf er mikilvægur áfangi fyrir Bara tala og tungumálið okkar. Verslanirnar Krónan, N1, Lyfja og Elko eru leiðandi í verslun og þjónustu og Bakkinn í vöruhýsingu og dreifingu, það var sérstaklega ánægjulegt að þróa starfstengt íslenskunám með þeim,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala.

Í samstarfi við Bara tala hefur Festi þróað sérsniðið starfstengt íslenskunám sem tekur mið af þörfum starfsfólks fyrirtækisins. Starfsfólk Bakkans, ELKO, Lyfju, N1 og Krónunnar hefur nú einnig aðgang að íslenskukennslu með aðstoð Bara tala.