Viðskiptablaðið hefur á undanförnum fjórum vikum kannað afstöðu þingmanna til þess hvort heimila eigi innlendum einkaaðilum að starfrækja vefverslanir með áfengi. Alls fengust svör frá 56 af 63 þingmönnum, ýmist skrifleg eða símleiðis.
Fjallað verður um niðurstöður könnunarinnar í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast greinina og svör einstakra þingmanna hér.
Viðskiptablaðið sendi eftirfarandi fyrirspurn á alla þingmenn: „Ert þú sem þingmaður almennt hlynntur eða andvígur því að heimila innlendum einkaaðilum að stunda smásölu áfengis á netinu?“ Jafnframt var spurt um afstöðu til núverandi fyrirkomulags áfengissölu með einkaleyfi ÁTVR.
Árétta skal að fyrirspurnin var fyrst send fyrir tæpum mánuði síðan, áður en Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra birti drög að frumvarpi um breytingu á áfengislögum þannig að heimilt verði að starfrækja innlenda vefverslun með áfengi í smásölu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að krefjandi verði fyrir Guðrúnu að ná frumvarpinu í gegnum þingið.
Fjallað er ítarlega um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrrmálið. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni og svör þingmanna hér og annað efni úr blaðinu hér.