Al­mennir fjár­festar í Bandaríkjunum eru farnir að endur­meta vægi stórra tækni­fyrir­tækja í eignasöfnum sínum eftir að markaðurinn náði sér á strik í kjölfar lægðar í apríl.

Þótt fyrir­tæki á borð við Nvidia, App­le og Micros­oft haldi áfram að vera meðal vinsælustu bréfa á markaði, benda gögn til þess að áhugi al­mennra fjár­festa sé að dvína.

Sam­kvæmt gögnum frá Vanda Research, sem The Wall Street Journal greinir frá, hefur hlut­fall al­mennra fjár­festa af heildar­fjár­magni sem runnið hefur inn í þessi fyrir­tæki dregist veru­lega saman, úr um 41% í byrjun apríl niður í 23% um miðjan júní.

Sam­hliða þessu sýna tölur frá Morningstar Direct að tækni­sjóðir hafa fengið um 7,1 milljarð bandaríkja­dala í hreint inn­flæði það sem af er ári.

Til saman­burðar hafa alþjóð­legir hluta­bréfa­sjóðir fengið tæp­lega 70 milljarða dala í nýtt fjár­magn.

Þessi þróun endur­speglar vaxandi tor­tryggni meðal fjár­festa gagn­vart verðmati hinna svo­kölluðu „Magnificent Se­ven“ – Alp­habet, Amazon, App­le, Meta, Micros­oft, Nvidia og Tesla.

Pat­ricia Andrews, 60 ára frum­kvöðull frá Kali­forníu, segir í sam­tali við Wall Street Journal að hún hafi ný­lega selt megnið af eign sinni í tveimur tækni­sjóðum eftir að þeir jöfnuðu sig á ný eftir lægðina í apríl.

„Mér finnst þau vera að missa dampinn. Ég hef grætt nóg og vil verja hagnaðinum í alþjóð­lega sjóði í staðinn,“ segir hún.

Þó að ekki sé um stór­felldar sölur að ræða, virðist hluti fjár­festa leita í aðra og stöðugri fjár­festinga­kosti.

Sumir beina sjónum að alþjóð­legum hluta­bréfum og minni fyrir­tækjum, aðrir velja traustari geira eins og nauð­synja­vörur og veitur.

Í sumum til­vikum eru fjár­festar ein­fald­lega farnir að draga í land vegna þess að verðmat stærstu tækni­fyrir­tækjanna þykir orðið of hátt miðað við vöxt og af­komu­spár.