Alvotech og Advanz Pharma tilkynntu í morgun um að félögin hafi gert með sér samning um markaðssetningu í Evrópu á AVT10, hliðstæðu við líftæknilyfið Cimzia (certolizumab pegol) sem þróun stendur yfir á hjá Alvotech.

Certolizumab pegol er líftæknilyf sem inniheldur einstofna mannamótefni sem hamlar virkni frumboðefnisins tumor necrosis factor alpha (TNF-alpha). Lyfið er notað til meðferðar við ýmsum bólgusjúkdómum á borð við liðagigt. Nýlegar klínískar rannsóknir á frumlyfinu sýna að það berst ekki til fósturs á meðgöngu eða með móðurmjólk.

Heildartekjur af sölu Cimzia á síðasta ári voru um 280 milljarðar króna (2,3 milljarðar bandaríkjadala) samkvæmt upplýsingum frá gagnaveitunni Global Data.

„Við erum eina fyrirtækið sem vinnur að þróun hliðstæðu við Cimzia, samkvæmt opinberum heimildum. Frumlyfið hefur náð umtalsverðri markaðshlutdeild í flokki gigtarlyfja, sérstaklega fyrir konur á barneignaraldri,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

„Það er okkur mikil ánægja að Advanz Pharma hafi sóst eftir því að fá að markaðssetja þessa hliðstæðu sem bætist við stórt safn lyfja sem félögin eiga í samstarfi um.“

Lyfjahugvitið fylgdi með í kaupum Alvotech á rannsóknar og þróunardeild sænska líftæknifyrirtækisins Xbrane í mars sl.

Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma er með höfuðstöðvar í Bretlandi og markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum.

Alvotech og Advanz Pharma hafa áður samið um þróun, framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðra hliðstæða við meira en tíu mismunandi líftæknilyf. Félögin gera ráð fyrir að hefja sölu á fyrstu hliðstæðunum þegar á síðasta fjórðungi ársins.

Haft er eftir forstjóra Advanz, Steffen Wagner, að fyrirhuguð hliðstæða við Cimzia sé verðmæt viðbót við það safn líftæknilyfja sem félögin ætli að setja á markað á næstu árum.