Alvotech hefur lokið endurfjármögnun skulda félagsins. Með því hefur félagið lækkað fjármagnskostnað og lengt lánstíma útistandandi skulda. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Alvotech.

Þar segir að endurfjármögnuninni lokinni sé heildarhöfuðstóll skulda Alvotech 1.035 milljónir Bandaríkjadala. Félagið eigi nú 185 milljónir dala í handbæru fé, að meðtöldum 25 milljónum dala í bundnu fé og 142 milljónum dala af hreinu andvirði sem endurfjármögnunin skilaði.

Lausafjárstaðan verði nýtt til áframhaldandi lyfjaþróunar og til að mæta veltufjárþörf, þegar fjöldi nýrra líftæknilyfjahliðstæða verði markaðsett á komandi misserum.

„Við fögnum því að hafa lokið endurfjármögnuninni, sem veitir okkur aukinn sveigjanleika til að útfæra áætlanir félagsins um vöxt á næstu árum,“ sagði Joel Morales, fjármálastjóri Alvotech. „Það var einnig ánægjulegt hversu margir fjárfestar nýttu sér nýlega réttinn til að skipta breytanlegum skuldabréfum félagsins yfir í hlutabréf. Það lýsir trausti á félaginu, enda horfur okkar afar góðar til lengri eða skemmri tíma, sem leiðandi aðili á sviði þróunar og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.“