Alvotech og breska lyfjafyrirtækið Advanz Pharma tilkynntu í dag að félögin hafi undirritað nýjan samning um framleiðslu og sölu þriggja fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða í Evrópu.

Samningurinn felur í sér greiðslu við undirritun og áfangagreiðslur, samtals að upphæð allt að 23,1 milljarður króna, eða um 160 milljónir evra. Að auki munu samstarfsaðilarnir skipta með sér tekjum af sölu lyfjanna.

Nýi samningurinn veitir Advanz Pharma einkarétt til markaðssetningar í Evrópu á fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Ilaris (canakinumab), sem notað er til meðferðar við ýmsum bólgusjúkdómum, og Kesimpta (ofatumumab), sem notað er til meðferðar við meðferðar hjá fullorðnum með heila- og mænusigg með köstum (RMS). Þá er fyrirhuguð hliðstæða við ónefnt frumlyf einnig hluti af nýja samningnum.

„Það er okkur mikil ánægja að auka samstarfið við Advanz Pharma. Sameiginlega ætlum við að markaðssetja hliðstæður meira en tíu líftæknilyfja í Evrópu og koma þrjár fyrstu hliðstæðurnar á markað þegar á þessu ári. Alvotech býr nú yfir einu verðmætasta safni líftæknilyfjahliðstæða í þróun innan greinarinnar. Samningurinn sýnir hvaða möguleika til tekjusköpunar þetta forskot gefur Alvotech,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

Forstjóri Advanz, Steffen Wagner, segir að með samningnum hafi félagið öðlast rétt til að markaðssetja meira en tíu líftæknilyfjahliðstæður frá Alvotech. Tvær hliðstæðanna sem nú er samið um séu notaðar til meðferðar við sjaldgæfum sjúkdómum og undirstrikar það áhersluna sem við leggjum á að bæta aðgengi að lyfjum á þessu sviði.

Áður höfðu Alvotech og Advanz Pharma samið um markaðssetningu fyrirhugaðra hliðstæða við Xolair (omalizumab), Simponi (golimumab), Entyvio (vedolizumab), Eylea (aflibercept) í lágum og háum styrk, Dupixent (dupilumab), Taltz (ixekizumab) og Tremfya (guselkumab).

Samningarnir ná yfir sölu á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, Bretland og Sviss, en samningurinn um Xolair nær að auki yfir Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjáland.

Samkvæmt gagnaveitunni IQVIA eru tekjur af sölu frumlyfja hliðstæðanna, á markaðssvæðinu sem samningar félaganna ná yfir, um 1.760 milljarðar króna á ári.