Úrvalsvísitalan hefur hækkað um tæplega eitt prósent í fyrstu viðskiptum í dag. Hlutabréf ellefu af 28 félögum aðalmarkaðarins hafa hækkað um meira en eitt prósent.
Alvotech leiðir hækkanir en gengi hlutabréfa líftæknilyfjafyrirtækisins hefur hækkað um 4% í hundrað milljóna viðskiptum. Gengi Alvotech stendur nú í 1.145 krónum á hlut en hefur engu að síður lækkað um 16% síðastliðinn mánuð.
Auk Alvotech hafa hlutabréf Haga, Kaldalóns og Oculis hækkað um meira en 2% í morgun.
Fimm félög hafa lækkað í fyrstu viðskiptum í dag. Síldarvinnslan er eina félagið sem hefur lækkað um meira en eitt prósent en hlutabréfaverð útgerðarfélagsins hefur fallið um 1,3% í 20 milljóna veltu og stendur nú í 75,5 krónum á hlut.