Hlutabréfaverð Alvotech hefur hækkað um 7,5% í meira en hálfs milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Gengi félagsins stendur nú í 1.370 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð.
Gengið hefur hækkað talsvert í stórum viðskiptum eftir klukkan tvö í dag. Fyrir rúmum hálftíma síðan fóru í gegn viðskipti að andvirði 134 milljónir króna á genginu 1.342,5.
Auk Alvotech hefur gengi hlutabréfa Oculis, Amaroq Minerals, Kviku banka, Eikar og JBT Marels hækkað um meira en tvö prósent í dag. Hækkun á gengi Kviku fylgir í kjölfar þess að bankinn tilkynnti á föstudaginn um niðurstöður 200 milljóna evra skuldabréfaútboðs í evrum.
Yfir milljarðs viðskipti með bréf Íslandsbanka
Líkt og síðustu daga hefur mesta veltan verið með bréf Íslandsbanka. Gengi Íslandsbanka hefur hækkað um 0,7% í 286 viðskiptum upp á samtals 1,1 milljarð króna, og stendur í 116,75 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð.
Hlutabréfaverð Nova og Icelandair hafa lækkað mest af félögum Kauphallarinnar.