Alvotech tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi keypt þróunarstarfsemi sænska líftæknifyrirtækisins Xbrane Biopharma AB. Samhliða kaupunum mun Alvotech í framhaldinu skoða mögulega skráningu í kauphöllinni í Stokkhólmi með útgáfu sænskra heimildaskírteina (SDR).

Umsamið kaupverð er 275 milljónir sænskra króna, eða um 3,6 milljarðar íslenskra króna, og verða 102,2 milljónir sænskra króna greiddar í reiðufé og 172,8 milljónir sænskra króna með yfirtöku skulda, en meirihluti þeirra eða 152,8 milljónir sænskra króna verður greiddur með eigin bréfum.

Kaupin eru bundin skilyrðum um samþykki viðkomandi yfirvalda og hluthafa Xbrane, að því er segir í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. Reiknað er með því að kaupunum verði lokið í apríl.

Stjórn Xbrane hefur samþykkt söluna til Alvotech. Auk stjórnarmanna, hafa stórir fjárfestar í hluthafahópi Xbrane skuldbundið sig til að greiða atkvæði með sölunni á hluthafafundi. Stjórn Xbrane mun kalla saman hluthafafund í apríl til að afla heimildar til að ljúka sölunni.

Taka yfir aðstöðu við Karolínska

Alvotech tekur yfir aðstöðu og búnað Xbrane, við Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og starfsfólk í þróunardeild fyrirtækisins. Starfsmönnum Xbrane verða boðin störf í rannsóknar- og þróunardeild Alvotech í Stokkhólmi.

Með kaupunum eignast Alvotech jafnframt allt lyfjahugvit Xbrane tengt fyrirhugaðri hliðstæðu við Cimizia (certolizumab pegol). Alvotech mun ljúka við þróun lyfsins og stefnir að því að setja það á markað á árinu 2028.

„Með kaupunum eykur Alvotech afkastagetu sína í þróun nýrra líftæknilyfjahliðstæða, styrkir stöðu sína sem leiðandi afl á þessu sviði og haslar sér völl innan sænska líftæknigeirans.“

„Alvotech er nú þegar í hópi leiðandi fyrirtækja á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða. Velta þeirra frumlyfja sem Alvotech þróar hliðstæður við er umtalsvert meiri en hjá nokkrum keppinaut okkar. Við ætlum að halda áfram að fjölga lyfjum í þróun og þar með bæta aðgengi sjúklinga að líftæknilyfjum í hæsta gæðaflokki,“ segir Róbert Wessman, stofnandi, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

„Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane auka enn frekar afkastagetu okkar í þróun nýrra lyfja, á sama tíma og Alvotech ætlar að fjölga verulega starfsfólki við lyfjaþróun á Íslandi. Fjöldi líftæknifyrirtækja í Svíþjóð er annar mesti á eftir Bandaríkjunum. Aðgengi að reyndu starfsfólki er því gott og jafnframt opnast möguleikar á frekara samstarfi við önnur sænsk líftæknifyrirtæki. Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane er því mikilvægt skref sem treystir enn frekar leiðandi stöðu okkar í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.“