Hlutabréfaverð Alvotech féll um 4,9% í yfir 370 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gengi líftæknilyfjafyrirtækisins stendur nú í 1.070 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan í byrjun maí.
Alvotech leiddi lækkanir í Kauphöllinni en alls lækkaði hlutabréfaverð 24 af 28 félögum aðalmarkaðarins í ríflega þriggja milljarða króna veltu.
Eftir lækkunina í dag hefur hlutabréfaverð Alvotech fallið um 26% frá 30. maí síðastliðnum þegar gengi félagsins stóð í 1.450 krónum. Félagið lauk í byrjun júní tæplega 10 milljarða hlutafjárútboði á genginu 1.320 krónum. Núverandi markaðsgengi Alvotech er 19% lægra en útboðsgengið.
Auk Alvotech þá lækkaði gengi hlutabréfa Kaldalóns, Eikar, Icelandair, Haga og JBT Marels um meira en 2,5% í viðskiptum dagsins.
Mesta veltan var með hlutabréf Kviku banka og Íslandsbanka, eða yfir hálfur milljarður króna hjá hvoru félagi um sig. Gengi Kviku hækkaði lítillega og stóð í 17,15 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar og hlutabréfaverð Íslandsbanka stóð í stað í 117,0 krónum á hlut.