Alvotech lækkaði tæp 8% við opnun kauphallarinnar í morgun. Dregið hefur úr lækkuninni og nemur hún nú 5,56%.

Ástæða lækkunarinnar er óvænt hlutafjárútboð í Svíþjóð sem lauk seint í gærkvöld. Þar voru seldir tæpir 10 milljarðar íslenskra króna að markaðsverði á gengi sem var 8,4% undir lokagengi í kauphöllinni í gær.

Alvotech var skráð í Svíþjóð um miðjan maí. Farin var einfaldari leið en skráning því gefin voru út heimildarskírteini, svo­kölluð Swed­ish Depository Receipts (SDR), sem gera fjár­fest­um í Svíþjóð kleift að eiga hlut í er­lendu fé­lagi í gegnum afleiðu án þess að eiga raun­veru­leg hluta­bréf í því. Þessi lausn ein­fald­ar skrán­ingu og viðskipti á mörkuðum milli landa.

Fjárfestum í Alvotech kom á óvart í fyrradag þegar félagið ákvað að sækja enn meira fé í Svíþjóð með 8,4 afslætti. Því hafa bréfin lækkað í íslensku kauphöllinni í morgun.