Málmleitarfélagið Amaroq Minerals hefur tilkynnt um stofnun þjónustufélags undir nafninu Suliaq A/S, sem mun hafa þann tilgang að sjá námuiðnaði í Grænlandi fyrir nauðsynlegum tækjum, rekstrarvörum og þjónustu.

Amaroq hefur náð samkomulagi við breska fyrirtækinu JLE Group, stærsta hluthafa Amaroq með 6,6% hlut, um að JLE fjárfesti fyrir 4 milljónir punda, eða ríflega 685 milljónir króna, fyrir 10% hlut í Suliaq gegn 90% hlut Amaroq.

Þá hefur JLE, sem á rætur í framkvæmda- og byggingariðnaði, val um að auka við fjárfestingu sína í félaginu fyrir 8 milljónir punda eða um 1,4 milljarða króna til viðbótar, þ.e. í heild allt að 12 milljónir punda, fyrir samtals 30% hlut.

Upphafleg fjárfesting JLE upp á 4 milljónir punda verður helst varið til kaupa á búnaði sem mun til skemmri tíma nýtast Amaroq í sinni starfsemi, en verður einnig nýttur til útleigu til annarra rekstraraðila í Grænlandi, segir í tilkynningu Amaroq til Kauphallarinnar.

Suliaq verður starfrækt með eigin stjórn og stjórnarhætti sem Amaroq segir að muni tryggja gagnsæi og sjálfstæði í ákvarðanatöku, m.a. til að tryggja að þjónusta félagsins til Amaroq bjóðist á armslengdarkjörum. Suliaq sé ætlað að starfa sem sjálfstæð eining með óháðu eftirliti.

Helstu áherslur í rekstri félagsins verða á þjónustu við félög í námurekstri, innviðum og rannsóknum.

„Gríðarleg aukning í fjárhæðum sem varið er til rannsókna á málmum síðastliðin fimm ár, ásamt auknum áhuga á uppbyggingu innviða, orku- og námuiðnaðar í Grænlandi, gerir Amaroq vel í stakk búið að liðka fyrir aðgengi að nauðsynlegum tækjum og þjónustu innan þessa vaxtamarkaðar,“ segir Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq.

„Með stuðningi reynslumikils aðila á borð við JLE hef ég mikla trú á getu okkar til að draga úr áhættu og skapa virði, ekki eingöngu fyrir okkar hluthafa heldur einnig aðra starfsemi og þar með Grænland í heild sinni.”