Amazon hefur á­kveðið að breyta um stefnu og krefjast þess að starfs­menn fyrir­tækisins mæti á skrif­stofuna fimm daga vikunnar.

Í bréfi sem for­stjóri fé­lagsins, Andy Jassy, birti á heima­síðu Amazon, segir að fyrir­tækið hafi trú á því að það sé tölu­verður á­bati fólginn í því að hafa alla saman á skrif­stofunni.

Amazon, líkt og önnur fyrir­tæki, leyfði starfs­mönnum sínum að vinna heima í kórónu­veirufar­aldrinum. Í kjöl­farið af því var gerð mála­miðlun og frá 1. maí 2023 hefur starfs­fólki verið heimilt að vinna heima tvo daga af fimm.

Samkvæmt The Wall Street Journal tekur breytingin gildi frá og með 1. janúar 2025 og eftir það mun Amazon óska eftir því að allir mæti til vinnu á starfstöð fimm daga vikunnar.

Amazon fylgir þar með fordæmi UPS, Boeing og JP­Morgan Chase sem einnig hafa gefist upp á heima­vinnu á síðustu mánuðum.