Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að það sem hafi gerst á Íberíuskaganum á dögunum eigi að vera okkur áminning um mikilvægi þess að halda áfram uppbyggingu bæði flutningskerfis raforku og orkuvinnslu. Er Hörður að vísa til hins víðtæka rafmagnsleysis sem varð á Spáni og í Portúgal í lok apríl
„Þegar umframeftirspurn verður í kerfinu getur það farið svona,“ segir hann. „Ég var sjálfur á Spáni þegar þetta gerðist og það er fátt sem minnir mann jafn óþyrmilega á hversu háð við erum þessum kerfum og þegar setið er í myrkri, án farsíma- og nettengingar."
„Sá kostur að gera ekkert í þessari uppbyggingu er því ekki möguleiki í mínum huga," segir Hörður. „Flutningskerfi raforku er á vissan hátt barn síns tíma og þar er mikil þörf á að endurnýja byggðalínuna. Það verður samt áfram óhjákvæmilegt a.m.k. næstu áratugina að stórnotendur verði staðsettir nálægt þeirri orkuvinnslu sem þeir nýta. Að sama skapi er mikilvægt að flutningskostnaður raforku á Íslandi sé samkeppnishæfur við þau lönd sem við keppum við um orkufreka framleiðslu. 70% hækkun hans á síðustu fimm árum er mikið áhyggjuefni fyrir samkeppnishæfni landsins.“
Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Samorkuþing 2025. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér.