Ingi Jóhann Guðmundsson var með 471 milljón krónur í fjármagnstekjur í fyrra og var systir hans, Anna Guðmundsdóttir, með 465 milljónir. Systkinin eru stærstu hluthafar fjárfestingafélagsins Kjálkaness með samtals 45% hlut. Þau eiga jafnframt tæplega 44% hlut í útgerðarfélaginu Gjögri, systurfélagi Kjálkaness, og er Ingi framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins.
Ingi og Anna voru meðal ríkustu Íslendinganna samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar fyrr á árinu en auður þeirra var metinn á 25 milljarða króna. Kjálkanes átti ríflega 34% í Síldarvinnslunni þegar félagið var skráð á markað en seldi eignarhluti fyrir 17 milljarða króna samhliða skráningunni. Í dag er Kjálkanes næststærsti hluthafi Síldarvinnslunnar með rúmlega 16% hlut. Þá er félagið næststærsti einkafjárfestirinn í Festi með 1,92% hlut.
Kjálkanes skilaði 4,4 milljarða króna hagnaði árið 2022 en félagið greiddi tvo milljarða í arð í fyrra.
Listi yfir þá 150 einstaklinga sem voru með hæstu fjármagnstekjurnar í fyrra birtist í Viðskiptablaðinu sem kom út á föstudag. Áskrifendur geta nálgast listann hér.