Tæknirisinn Apple á nú í viðræðum við eftirlitsaðila Evrópusambandsins í von um að forðast fleiri sektir frá ESB sem fyrirtækið gæti fengið á sig í þessari viku. Á vef FT segir að Apple hafi þegar verið sektað um 500 milljónir evra fyrir brot á evrópskum lögum.
Apple, sem er metið á þrjá milljarða dala, mun hafa brotið gegn stafrænum markaðslögum sem gerð voru til að takmarka völd og áhrif stórra fyrirtækja.
Búist er við því að Apple muni gefa eftir á einhverjum sviðum til að veita fyrirtækinu meiri tíma en að öllu óbreyttu mun Apple fá á sig álagssektir á fimmtudaginn kemur. Sektirnar gætu síðan stigmagnast með tímanum og numið allt að 5% af meðaltekjum félagsins.
Samkvæmt þeim sem þekkja til viðræðna er búist við því að Apple muni slaka á svokölluð stýriákvæði innan App Store sem hafa hingað til komið í veg fyrir að notendur fái aðgang að tilboðum utan niðurhalsvettvangs Apple.
Viðræðurnar eru jafnframt að eiga sér stað í aðdraganda heimsóknar Donalds Trumps sem mun sækja leiðtogafund NATO í vikunni í Haag. Leiðtogar Evrópu og Bandaríkjanna hafa einnig til 9. júlí nk. til að ná fram viðskiptasamkomulagi en tæknigeirinn hefur oft verið stórt deilumál milli beggja hliða.