Franska sjóðastýringafyrirtækið hefur óskað eftir sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið (SKE) vegna kaupanna á Mílu af Símanum. Frestur eftirlitsins til þess að ljúka rannsókn á viðskiptunum frestast því til 18. ágúst næstkomandi í stað 27. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar.
Síminn tilkynnti fyrr í vikunni að bæði félagið og Ardian hefði borist andmælaskjal með frummati SKE á rannsókninni. Frumniðurstaða SKE var að samruninn raski samkeppni og verði ekki samþykktur án skilyrða og/eða með frekari útskýringum af hálfu sarmunaaðila. Rannsókn SKE hófst þann 8. febrúar síðastliðinn.
Síminn gekk frá kaupsamningi vegna sölu á Mílu til sjóðs í stýringu Ardian í október 2021. Heildarvirði Mílu í viðskiptunum (e. enterprise value) er 78 milljarðar króna og áætlaður söluhagnaður Símans er rúmlega 46 milljarðar króna. Samkvæmt samningnum fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða í formi skuldabréfs til þriggja ára. Við afhendingu Mílu til Ardian tekur í gildi 20 ára heildsölusamningur á milli Símans og Mílu.