Arion banki hagnaðist um 5,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi yfirstandandi árs, en til samanburðar nam hagnaður sama tímabils í fyrra 7,1 milljarði króna. Á fyrstu sex mánuðum ársins nam hagnaður bankans 9,9 milljörðum, sem er 3,5 milljörðum lægri hagnaður en á fyrri hluta ársins 2023. Arðsemi eiginfjár var 11,5% á öðrum ársfjórðungi og dróst saman um 4% frá sama tíma í fyrra. Á fyrstu sex mánuðum ársins var arðsemi bankans 10,2%, samanborið við 14,5% á sama tímabili árið 2023. Arðsemi á fyrstu sex mánuðum ársins var því 2,8% undir 13% arðsemiskröfu stjórnar bankans.

Rekstrarkostnaður jókst um 19,1% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama fjórðung 2023, að stórum hluta vegna sáttar við Fjármálaeftirlitið og greiðslu sektar. Rekstrarkostnaðurinn hækkaði um 9,8% á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við sama tímabil 2023, að hluta til vegna fyrrnefndrar sáttar og greiðslu sektar.

Hreinn vaxtamunur var 3,2 % á öðrum ársfjórðungi og var óbreyttur frá sama tíma í fyrra. Þá nam hreinn vaxtamunur 3,1% á fyrri helmingi árs og var einnig óbreyttur á milli ára.

Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 1% í samanburði við annan ársfjórðung 2023. Kjarnatekjur á fyrri hluta árs lækka þó um 1% samanborið við fyrstu sex mánuði 2023.

Í uppgjöri bankans segir að góður fjórðungur í þóknanastarfsemi hafi skilað 4 milljörðum króna, samanborið við 4,2 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Hreinar þóknanatekjur hafi numið 7,3 milljörðum á fyrri hluta ársins og dregist saman frá fyrra ári. Annar fjórðungur hafi verið sterkur í þóknunum eftir slakan fyrsta fjórðung. Virkt skatthlutfall hagi verið hátt á öðrum ársfjórðungi eða 32,6%, sem skýrist af óhagstæðri samsetningu tekna og gjalda. Virkt skatthlutfall var 35,1% á fyrstu sex mánuðum ársins, sem eigi sér sömu skýringar.

Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 46,2% á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 39,4% á sama tímabili 2023. Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 47,2% á fyrri hluta árs, samanborið við 43,0% á sama tímabili í fyrra.

Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 1,6% á öðrum ársfjórðungi og hefur stækkað um 2,8% frá árslokum 2023. Lán til viðskiptavina jukust um 2,0% á fjórðungnum. Hækkun á lánum til fyrirtækja var 1,4% og 2,6% á lánum til einstaklinga, einkum íbúðalán. Innlán frá viðskiptavinum jukust um 5,6% á fjórðungnum

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 22,8% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,5% í lok júní. Hlutföllin taka tillit til væntrar arðgreiðslu sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans og endurkaupa eigin bréfa að fjárhæð 3 milljarða króna sem samþykkt hefur verið af stjórn og Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirlitinu.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Það er margt mjög gott í uppgjöri bankans á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að við náum ekki 13% arðsemismarkmiði okkar. Góður vöxtur er í innlánum og jukust vaxtatekjur á milli fjórðunga sem og þóknanatekjur þar sem við sjáum aukin umsvif þegar kemur að flestum þjónustuþáttum okkar en einna mest í eignastýringu, kortaþjónustu og lánveitingum. Þannig jukust eignir í stýringu um 10% á fyrri helmingi ársins, náðu í fyrsta sinn yfir 1.500 ma.kr og nálgast nú stærð efnahagsreiknings samstæðunnar. Tryggingastarfsemin gekk einnig vel og var 13% tekjuvöxtur miðað við annan ársfjórðung í fyrra. Afkoma Varðar var jákvæð þrátt fyrir að á tímabilinu hafi stærsta einstaka tjón í sögu félagsins átt sér stað og skýrist það m.a. af þátttöku endurtryggjenda. Eiginfjárstaða bankans er áfram mjög traust og hlutfall eiginfjárþáttar 1 er 18,5%, eða 3,3% yfir lögbundnu lágmarki. Lausafjárstaða bankans er jafnframt mjög góð og gott jafnvægi í fjármögnun.

Eitt af því sem hafði áhrif á arðsemi fjórðungsins er sátt sem bankinn gerði við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands undir lok annars ársfjórðungs þar sem bankinn féllst á að greiða sekt að upphæð 585 milljónir króna. Hefði ekki komið til þessarar sáttargreiðslu þá hefði arðsemi bankans á fjórðungnum numið 12,7%. Sáttin við fjármálaeftirlitið var gerð í kjölfar könnunar eftirlitsins sem fram fór sumarið 2022 og sneri að aðgerðum bankans gegn peningaþvætti. Í könnun fjármálaeftirlitsins komu í ljós annmarkar á framkvæmd bankans og var athugasemdum strax tekið alvarlega og ráðist í allsherjar endurskoðun á framkvæmdinni. Við höfum nú styrkt til muna þá þætti í starfseminni sem snúa að hlutverki okkar í vörnum gegn peningaþvætti með því meðal annars að efla okkar kerfi og fjölga því starfsfólki sem sinnir þessu mikilvæga hlutverki.

Arion banki hefur verið leiðandi þegar kemur að fyrirtækjaráðgjöf hér á landi síðustu ár og á öðrum ársfjórðungi var bankinn ráðgefandi í einu kauphallarskráningu það sem af er ári þegar Kaldvík var skráð á First North markaðinn. Arion banki er jafnframt ráðgjafi JBT í yfirtökutilboði félagsins í hlutafé Marel. Er óhætt að fullyrða að nái áform JBT fram að ganga þá verði um einhver stærstu viðskipti síðasta áratugar hér á landi að ræða.

Áhersla okkar á traustan rekstur og framúrskarandi fjármálaþjónustu þar sem þægileg stafræn þjónusta er í forgrunni hefur leitt til þess að Arion banki hefur verið valinn banki ársins hér á landi síðustu þrjú ár af fjármálatímaritinu The Banker sem er gefið út af The Financial Times. Nýlega valdi svo tímaritið Euromoney Arion sem banka ársins 2024 á Íslandi og jafnframt besta stafræna banka landsins. Segja má að þetta sé í samræmi við niðurstöður könnunar Maskínu sem birtar voru í júní og sýna að viðskiptavinir bankanna telja Arion appið besta bankaappið hér á landi, áttunda árið í röð. Við erum þakklát fyrir þessa jákvæðu endurgjöf og nýtum hana sem hvatningu til að gera enn betur. Við höfum lagt mikla áherslu á að vera leiðandi þegar kemur að stafrænni þjónustu eins og sést vel á þeirri fjölbreyttu þjónustu sem er viðskiptavinum aðgengileg í Arion appinu. Þar fæst með einföldum hætti yfirsýn yfir allt sem tengist fjármálum; svo sem kortareikninga, sparnað, tryggingar, lífeyrissparnað og verðbréfaeign. Nýjustu viðbæturnar eru annars vegar það sem við köllum Arion fjölskylda, en þar geta forráðamenn sjálfkrafa fengið sýn á reikninga barna sinna og deilt sýn á eigin fjármál með maka, og hins vegar Arion endurgreiðsla, sem gefur þeim viðskiptavinum Arion banka sem eru í viðskiptum við Vörð kost á 5% endurgreiðslu tryggingaiðgjalda ef þeir eiga tjónlaust ár.

Arion banki vinnur áfram að þróun Arnarlandsins í Garðabæ og Blikastaðalandsins í Mosfellsbæ. Í undirbúningi er uppbygging fjölbreyttrar íbúabyggðar ásamt tengdri þjónustu. Arion banki á 51% í Arnarlandinu þar sem gert er ráð fyrir að reisa um 500 íbúðir og um 30 þúsund fermetra af atvinnu- og verslunarhúsnæði. Blikastaðalandið er alfarið í eigu bankans og er um 100 hektarar að stærð. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir uppbyggingu um 1.200 íbúða á um 30-35 hekturum og uppbyggingu innviða eins og skóla og leikskóla. Bæði þessi verkefni eru unnin í góðu samstarfi við sveitarfélögin og munu auka framboð íbúðahúsnæðis á næstu árum.”