Stóru viðskiptabankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn standa allir mjög vel hvað eiginfjárstöðu varðar, enda ber þeim að hafa hátt eiginfjárhlutfall í alþjóðlegum samanburði.

Eigið fé Landsbankans nam 304 milljörðum króna um síðustu áramót, Íslandsbanka 225 milljörðum króna og Arion banka 199 milljörðum. Þá var heildareiginfjárhlutfall Íslandsbanka 25,3%, Arion banka 24,1% og Landsbankans 23,6%.

Ein mikilvægasta stærð til að mæla árangur banka er arðsemi eigin fjár, enda segir það til um hvernig tekst að ávaxta fjármagnið sem eigendur hafa bundið í félaginu. Stjórnir bankanna setja fram arðsemiskröfu og í dag er sú krafa gerð að Landsbankinn og Íslandsbanki skili 10% arðsemi. Aftur á móti hækkaði stjórn Arion banka arðsemiskröfu sína í lok árs 2021 úr 10% í 13%.

Undanfarin fjögur ár hefur Arion banki skilað mestri arðsemi. Í fyrra nam arðsemi eiginfjár bankans 13,6%, árið áður var arðsemin 0,1% hærri og árið 2021 skilaði bankinn 14,7% arðsemi. Til samanburðar skilaði Íslandsbanki 11,3% arðsemi í fyrra, 11,8% arðsemi árið áður og 12,3% arðsemi árið 2021.

Arðsemi eiginfjár Landsbankans var svo 11,6% í fyrra eftir að hafa aðeins verið 6,3% árið 2022. Á fyrri hluta ársins 2022 var arðsemin einungis 4,6%, en uppgjör tímabilsins litaðist verulega af lækkandi hlutabréfagengi Marels. Landsbankinn á 3,5% óbeinan hlut í Marel í gegnum 14,2% eignarhlut bankans í fjárfestingafélaginu Eyri Invest, stærsta hluthafa Marels.

Fyrir um ári síðan, er verðbólga mældist 9,9%, var raunarðsemi Landsbankans fyrir árið 2022 í heild neikvæð um 3,6%. Samkvæmt nýjustu verðbólgumælingum er verðbólga aftur á móti komin niður í 6,7% og skilaði bankinn því 4,9% raunarðsemi árið 2023. Raunarðsemi Arion banka nemur 6,9% og Íslandsbanka 4,6%.

Þegar horft er til áranna 2018 og 2019 var staðan aftur á móti önnur. Þá skilaði Landsbankinn mestri arðsemi en Arion banki minnstri. Árið 2019 nam arðsemi Landsbankans 7,5% og 8,2% árið 2018. Til samanburðar var arðsemi Arion banka aðeins 0,6% árið 2019 og 3,7% árið 2018. Á sama tíma var arðsemi Íslandsbanka 4,8% árið 2019 og 6,1% árið 2018.