Stjórn Arion banka ákvað á fundi sínum í dag að óska eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja, að því er kemur fram í tilkynningu Arion til Kauphallarinnar.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Paul Horner, stjórnarformarður bankans, hafa sent Ármanni Þorvaldssyni, bankastjóra Kviku, og Sigurður Hannessyni, stjórnarformanni Kviku, bréf þess efnis.
Arion segir að ákveði stjórn Kviku banka að ganga til samrunaviðræðna sé það von Arion að viðræður hefjist sem fyrst.
Tillaga stjórnar Arion er að við ákvörðun skiptihlutfalls verði horft til markaðsverðs félaganna, eftir atvikum að teknu tilliti til gengisþróunar á tímabili sem stjórnir félaganna koma sér saman um.
„Það er mat stjórnar Arion banka að samruni félaganna myndi skila verulegum verðmætum til hluthafa beggja félaga. Sameining félaganna fæli í sér tækifæri til tekjuaukningar, áhættudreifingar, hagræðingar og lækkunar á fjármögnunarkostnaði. Þannig gæti sameining félaganna aukið skilvirkni á íslenskum fjármálamarkaði sem kæmi viðskiptavinum beggja félaga til góða,“ segir í tilkynningu Arion.
Arion banki reyndi í febrúar síðastliðnum að hefja samrunaviðræður við Íslandsbanka en stjórn síðarnefnda bankans afþakkaði boðið.
Viðskiptablaðið fjallaði á dögunum ítarlega um mögulega samþjöppun í bankakerfinu en forsvarsmenn Íslandsbanka og Arion banka hafa ekki farið leynt með áhuga sinn á ytri vexti að undanförnu. Þá er almennt talið að nýlokið útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka gæti orðið kveikja að frekari hreyfingum á markaðnum.