Arion banki hefur tilkynnt um lækkun á óverðtryggðum útlánavöxtum bankans í kjölfar 0,25 prósenta stýrivaxtalækkun Seðlabankans í gær. Breytingar á vöxtum útlána Arion taka gildi á þriðjudaginn, 8. október. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans.

Óverðtryggðir breytilegir vextir Arion lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,64%. Þá lækka óverðtryggðir fastir vexti um 0,6 prósentustig og verða 8,8%.

Jafnframt lækka kjörvextir bílalána, almennir óverðtryggðir kjörvextir, og yfirdráttarvextir bankans um 0,25 prósentustig.

Óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga Arion lækka um allt að 0,35 prósentustig. Innlánsvextir veltureikninga eru óbreyttir. Vextir reikninga í erlendri mynt lækka um allt að 0,76 prósentustig, mismunandi eftir myntum og þeim breytingum sem átt hafa sér stað á stýrivöxtum viðkomandi lands.

„Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.“