Landey ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur undirritað samkomulag við félagið Reykjanes Investment ehf. um kaup þess á fasteignum og lóðum í Helguvík á Reykjanesi þar sem um tíma var starfrækt kísilverksmiðja. Kaupverð er trúnaðarmál að því er segir í tilkynningu.
Arion banki eignaðist kísilverksmiðjuna árið 2018 í kjölfar gjaldþrots fyrri eiganda, United Sílicon hf.
„Um nokkurra ára skeið hefur Arion banki leitað kaupenda að Helguvík með það markmið að þar geti byggst upp annars konar starfsemi,“ segir í tilkynningu Arion.
„Því er ánægjulegt að nú taki Reykjanes Investment við eignunum en félagið hyggur á þróun á svæðinu og frekari uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í nánu samstarfi við Reykjanesbæ og Reykjaneshafnir.“
„Helguvíkin er svæði sem getur hýst margvíslega starfsemi og haft jákvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi. Það eru því góð tíðindi að nú taki heimamenn við keflinu, fólk sem þekkir vel til á Reykjanesi og hefur á undanförnum árum sinnt uppbyggingu á svæðinu. Nýir eigendur eru með metnaðarfulla framtíðarsýn og verður spennandi að sjá Helguvík fá nýtt hlutverk,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Reykjans Investment ehf. er byggingar- og þróunarfélag sem segist leggja áherslu á skapandi og vandaða uppbyggingu á Suðurnesjum.
Reykjanes Investments er í helmingseigu Gullhjartans ehf., félags Magnúsar Guðmundssonar og Sigurgeirs Rúnars Jóhannssonar, og Lax ehf., félag Kjartans Páls Guðmundssonar og Viktoríu Hrundar Kjartansdóttur.
„Við hjá Reykjanes Investment erum spennt fyrir því verkefni að þróa og endurskipuleggja þetta frábæra og vel staðsetta svæði, samfélaginu okkar til heilla. Það er einlægt markmið okkar að þarna verði atvinnustarfsemi í sátt við umhverfi sitt sem nýtur góðs af þeim frábæru innviðum sem eru allt í kring, eins og höfninni og flugvellinum, og því kraftmikla samfélagi sem er á Reykjanesi,“ segir Sigurgeir Rúnar Jóhannsson hjá Reykjanes Investment.
„Þetta eru ánægjuleg tímamót fyrir íbúa svæðisins þar sem ákveðinni óvissu um þá starfsemi sem lagt var upp með verður nú vonandi endanlega eytt. Við hlökkum til samtalsins og samstarfsins við nýja eigendur en hagsmunir bæjarins og hafnarinnar fara saman með þeirri uppbyggingu og tækifærum sem kaupin geta leitt af sér,“ segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar.