Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,45% á milli maí og júní, samanborið við 0,45% lækkun í maí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 4,7%, samanborið við 5,7% í síðasta mánuði, og hefur ekki verið minni síðan í ársbyrjun 2024.
„Raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli er á niðurleið og nam 0,5 prósent í júní en til samanburðar var 12 mánaða raunhækkun íbúðaverðs 1,9 prósent í maí og 3,3 prósent í apríl,“ segir í tilkynningu á vef HMS.
HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.
Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% milli mánaða og hefur nú hækkað um 3,1% á síðustu tólf mánuðum. Í júní hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 2,3%% milli mánaða og hefur nú hækkað um 5,8% á síðustu tólf mánuðum.
Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni lækkaði um 3,7% milli mánaða en hefur engu að síður hækkað um 4,9% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni lækkaði um eitt prósent á milli mánaða og hefur nú hækkað um 5,7% síðasta árið.