Ásgeir Jónsson mun gegna embætti seðlabankastjóra næstu fimm árin, eða til 2029. Forsætisráðuneytið staðfestir þetta í samtali við RÚV.

Skipunartími Ásgeirs rennur út í ágúst á þessu ári en samkvæmt lögum hefði forsætisráðherra þurft að tilkynna seðlabankastjóra með sex mánaða fyrirvara ef auglýsa ætti stöðuna. Þar sem það var ekki gert er Ásgeir sjálfkrafa skipaður til næstu fimm ára.

Samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands er aðeins hægt að skipa sama mann í embætti seðlabankastjóra tvisvar sinnum.

Tími Ásgeirs í Seðlabankanum hefur verið viðburðaríkur. Hálfu ári eftir skipun hans í embætti skall kórónuveirufaraldurinn á. Seðlabankinn brást við hinni miklu óvissu sem hagkerfið stóð frammi fyrir með að lækka stýrivexti niður í 0,75% en þeir höfðu aldrei verið lægri í sögu bankans. Síðan þá hafa meginvextir bankans verið hækkaðir upp í 9,25%.

Ásgeir, sem áður starfaði sem deildarforseti hagfræðideildar HÍ, tók við embættinu af Má Guðmundssyni haustið 2019. Már hafði þá stýrt Seðlabankanum í tíu ár. Ásgeir var meðal sextán umsækjenda um embættið. Auk hans hafði hæfnisnefnd metið Arnór Sighvatsson, Gylfa Magnússon og Jón Daníelsson mjög vel hæfa til að gegna embættinu.