Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði Seðlabankann telja að líklega þurfi „einhverja harða lendingu í raunhagkerfinu“ svo að verðbólga fari niður í markmið. Þetta sagði hann á kynningarfundi fjármálastöðugleikanefndar í morgun.

Nefndin sagði í yfirlýsingu sem birt var í morgun að viðvarandi verðbólga og háir vextir hafi skapað áskoranir fyrir heimili og fyrirtæki síðustu misseri. Vanskil í fjármálakerfinu séu þó lítil og efnahagsreikningar einkageirans almennt sterkir ásamt því að skuldahlutföll sé lág í sögulegum og alþjóðlegum skilningi.

Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, spurði bankann út í þessar áskoranir m.t.t. verðbólguspár Seðlabankans sem gerir ráð fyrir að verðbólga verði áfram yfir 3% á fyrri helmingi næsta árs og setti þær í samhengi við skilaboð peningastefnunefndar um að vextir verði ekki lækkaðir nema verðbólga minnkar.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 5.995 kr. á mánuði