Stemming ehf., móðurfélag Einhamars Seafood í Grindavík, hagnaðist um 452 milljónir króna í fyrra, samanborið við 435 milljóna króna hagnað árið 2023. Tekjur samstæðunnar, sem sérhæfir sig í rekstri útgerðar og fiskvinnslu, jukust lítillega milli ára og námu tæplega 2,7 milljörðum króna.

Í skýrslu stjórnar segir að jarðhræringar og eldsumbrot á Reykjanesskaga haldi áfram en fiskvinnsla Einhamars í Grindavík hafi hafist fljótlega í byrjun árs 2024 og félagið getað haldið úti starfsemi án teljandi vandræða.

Ljóst sé hins vegar að bæjarfélagið hafi orðið fyrir ómældum skaða og áskorun muni áfram felast í atvinnurekstri á svæðinu á meða óvissa ríki um framhald náttúruhamfara og enduruppbyggingu bæjarfélagsins. Sömuleiðis sé óvissa um lagarúlkanir sem snerti vátryggingarvernd við þær aðstæður sem ríkja á svæðinu.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.