Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur sett Ástráð Haraldsson héraðsdómara sem ríkissáttasemjara í yfirstandandi vinnudeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að stjórn dómstólasýslunnar hafi samþykkt að veita Ástráði leyfi frá dómarastörfum og hefst leyfið nú þegar.
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari óskaði eftir því í gær að víkja í yfirstandandi kjaradeilu Eflingar og SA í kjölfar þess að Landsréttur hafnaði kröfu hans um afhendingu kjörskrár Eflingar.
Ráðuneytið ítrekar að Aðalsteinn gegnir eftir sem áður embætti ríkissáttasemjara. Störf Ástráðs Haraldssonar munu einvörðungu snúa að ofangreindri vinnudeilu.