Hátæknifyrirtækið atNorth, sem meðal annars rekur gagnaver og ofurtölvuþjónustu í Hafnarfirði og Reykjanesbæ og reisir um þessar mundir nýtt gagnaver á Akureyri, hefur keypt tvö gagnaver í Finnlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

atNorth hyggst reisa þriðja gagnaverið í Finnlandi, en fyrirtækið starfrækir fyrir nýtt og vistvænt gagnaver í Svíþjóð.

Finnsku gagnaverin tvö voru áður í eigu Advania, en atNorth mun strax taka við rekstri þeirra, stjórnun og fasteignum ásamt öllum búnaði. Lykilstarfsfólk mun áfram starfa í gagnaverunum og tryggja með sérfræðiteymi atNorth hnökralaus umskipti og samfellda þjónustu við viðskiptavini, að því er kemur fram í tilkynningu. Advania mun nýta þjónustu gagnaveranna eftir sem áður, en félagið veitir alhliða upplýsingatækniþjónustu á Norðurlöndum.

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, segir fjárfestinguna í Finnlandi vera mikilvæga og í samræmi við yfirlýsta stefnu atNorth um að verða leiðandi á sínu sviði á Norðurlöndunum.

„Fyrir okkur er þetta mjög spennandi verkefni sem fellur vel að okkar áformum um að reka gagnaver á öllum Norðurlöndunum. Finnland hefur lengi verið leiðandi í tæknilausnum og vinnur skipulega að því að laða til sín erlendar fjárfestingar á þessu sviði. Rík hefð er fyrir fjárfestingum finnskra fyrirtækja í rannsóknum og þróun stafrænna lausna og hafa stjórnvöld sett stafræna þróun í forgang og þar með gaganversiðnað sem er grunnstoð stafrænnar vegferðar samfélagsins.” segir Eyjólfur Magnús.