Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Aldin Dynamics, sem skapar tækni og upplifanir fyrir sýndarveruleika, margfaldaði tekjur sínar fyrr í sumar í kjölfar þess að vara félagsins náði mikilli útbreiðslu (e. viral). Varan, Waltz of the Wizard, gerir notendum kleift að stíga inn í ævintýralegan heim og kynnast dularfullum sögupersónum. Til marks um útbreiðsluna hefur varan fengið yfir 100 milljónir áhorfa um heim allan.

Hrafn Þorri Þórisson, framkvæmdastjóri Aldin, stofnaði fyrirtækið árið 2013 ásamt Gunnari Steini Valgarðssyni. „Við höfum einblínt á að skapa sögupersónur sem hegða sér eins og lifandi persónur með hjálp sýndarveruleika. Notendur þurfa ekki að notast við stýripinna heldur stýra þeir ferðinni með höndunum. Við höfum hannað heim þar sem markmiðið er að notendur upplifi að þeir stígi inn í annan veruleika. Við viljum ekki að fólki líði eins og það sé að spila tölvuleik,“ segir Hrafn.

Í maí síðastliðinn náðu sögupersónur Aldin eins og fyrr segir mikilli útbreiðslu, m.a. á Youtube og samfélagsmiðlum. Þar fór fremstur í flokki Skully, talandi höfuðkúpa, sem getur að sögn Hrafns brugðist við nánast hverju sem notendur gera. „Hann getur haldið uppi samræðum við fólk og er í raun hannaður til að haga sér eins og manneskja.“

Vinsældirnar fóru ekki framhjá Meta, móðurfélagi Facebook, sem bauð Hrafni og Gunnari í heimsókn til London til að deila reynslu sinni með stórfyrirtækinu. Meta hefur á undanförnum árum lagt síaukna áherslu á gervigreind og sýndarveruleika. Áherslur félagana falla því vel saman. „Við höfum átt í samstarfi við Meta í um áratug og áttum fyrir það í samstarfi við sýndarveruleikafélagið Oculus, sem Meta keypti árið 2014. Við höfum því fengið að taka þátt í þróun sýndarveruleika-vélbúnaðar Meta og farið nokkuð reglulega í heimsóknir til þeirra.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.