HILI býður fasteignaeigendum að selja hluta úr eign sinni til sjóðsins en halda áfram að búa í húsnæðinu. Þetta er talin hentug lausn fyrir fólk sem á mikið eigið fé bundið í húsnæði sínu en er með takmarkað laust fé.
Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri HILI á Íslandi, segir í samtali við Viðskiptablaðið að HILI stefni á að byrja að fjárfesta í fasteignum í ágústmánuði.
Nú þegar hafa yfir 300 fasteignaeigendur skráð sig á biðlista til að kanna möguleikann á að selja hluta af eign sinni til sjóðsins.
„Nú er að fara af stað og hitta fjárfesta,“ segir Sigurður. Sigurður bendir á að í núverandi umhverfi geti verið erfitt fyrir fólk með takmarkað fjármagn að fá lán frá bönkum. „Lánshlutföll eru komin hátt víða og reglur um greiðslumat setja skorður. Þetta er lausn fyrir fólk sem á talsvert eigið fé bundið í húsnæði en hefur lítið á milli handanna.“
HILI tengir saman fasteignaeigendur og fjárfesta. Sjóðurinn kaupir 10–50% hlut í íbúðarhúsnæði einstaklinga, að því gefnu að viðkomandi búi þar áfram. Skuldsetning meðeigandans má þó ekki fara yfir 75%.
„Fólk getur búið áfram í húsnæði sínu en losað um fé með því að selja okkur hluta,“ segir Sigurður og nefnir að um 11.000 milljarðar króna séu bundnir í íbúðarhúsnæði á Íslandi – fjárhæð sem fari yfir stærð lífeyrissjóðakerfisins. Spurður um hverjir hafi sýnt mestan áhuga, segir Sigurður að fyrirspurnir hafi borist víða að.
„Við höfum fengið fullt af fyrirspurnum frá eldra fólki sem getur ekki tekið lán út á húsnæðið, er með lágan lífeyri en á kannski húsnæðið sitt skuldlaust. Þetta eru líka foreldrar sem vilja hjálpa börnum sínum í fasteignakaupum en eiga ekki mikið laust fé en á mikið í eigin fasteign. Svo er þetta fólk sem er að skilja og annar aðilinn vill búa í húsinu með börnunum en getur ekki keypt hinn út.“
HILI starfar nú þegar á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð og Danmörku og hyggst stækka frekar í Evrópu.
HILI er fyrsta félagið sem býður upp á sameignarformið í Evrópu en töluverð reynsla er af því í Bandaríkjunum. Spurður um viðskiptamódelið segir hann að verið sé að veðja á hækkandi fasteignaverð og breytt húsnæðisfyrirkomulag til framtíðar.
„Svo tökum við árlegt gjald sem er bara eins og leiga af okkar hlut en það eru engar mánaðarlegar greiðslur. Við tökum leiguna fyrstu tvö árin af kaupverðinu en eftir það safnast hún upp og síðan er gert upp í lokin.“
Langtímahugsunin sé sú að hvernig fólk hagi húsnæðismálum sínum sé að breytast.
„Við vitum að kynslóðin á undan okkur vildi bara eiga húsin sín skuldlaust. Þetta var arfurinn. En fólk er farið að hugsa öðruvísi núna og vill kannski hjálpa börnunum sínum af stað. Því þetta er sú helsta eign, fyrir utan lífeyrissparnað, sem fólk á.“
Spurður um hvernig það kom til að hann fór að vinna hjá HILI segir Sigurður það hafa verið „algjör tilviljun eins og margt í þessu lífi“. Fyrrum kollegi hans hafði bent honum á fyrirtækið á sama tíma og hann var að leita sér að nýjum verkefnum og rúllaði boltinn hratt eftir það. „Hann hafði verið að vinna fyrir HILI og benti mér á að hafa samband þar sem þetta væri ekta eitthvað fyrir mann með minn bakgrunn. Ég heyrði í þeim og var kominn til Osló og í þetta verkefni hálfum mánuði seinna. Þetta var í október og ég er búinn að vera að undirbúa þetta síðan.“