Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir rekstraraðilum sem hafa áhuga á að taka að sér rekstur á 80 til 150 rýma hjúkrunarheimilum.
Um er að ræða hið minnsta þrjú ný hjúkrunarheimili sem til stendur að taki til starfa á næstu árum og verða staðsett á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.
Nýtt fyrirkomulag um húsnæðismál hjúkrunarheimila verður viðhaft í þessum verkefnum þar sem lagt er upp með að rekstraraðili hjúkrunarheimilis komi að rýni á hönnun og útfærslu á innra fyrirkomulagi heimilisins, til að tryggja gæði og hagkvæmni væntanlegrar starfsemi.
„Þetta er ánægjulegur áfangi á þeirri vegferð að tryggja tímanlegt aðgengi að þjónustu hjúkrunarheimila í takt við þörf samfélagsins,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Að svo stöddu liggur ekki fyrir fjöldi rýma né nákvæm staðsetning heimilanna. Innkaupaferli um rekstur og þjónustu hvers hjúkrunarheimilis mun vinda fram í takti við framgang húsnæðismála í hverju tilfelli fyrir sig.
„Það er mikill áhugi meðal helstu rekstraraðila sem koma að þessari þjónustu að taka að sér rekstur þessara rýma og efla þjónustuna þar með enn frekar. Þessi aðferð að auglýsa með góðum fyrirvara gefur okkur tækifæri að bæta undirbúninginn og tryggja að heimilin verði opnuð í samræmi við áætlanir,“ segir Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.