Kvika banki hefur metið áhrif CRR III á eigin­fjár­bindingu sína og telur að áhættu­vegnar eignir (REA) muni lækka um allt að 14 pró­sent. Þetta skapar tals­vert svigrúm hjá bankanum til að auka útlán eða endur­skipu­leggja eigin­fjár­sam­setningu.

Líkt og Við­skipta­blaðiðgreindi frá í síðustu viku munu nýju evrópsku fjár­mála­reglurnar CRR III hafa á útlána­skil­yrði bankanna.

Þegar borin eru saman áætluð áhrif CRR III á ís­lenska banka kemur í ljós að hlut­falls­leg lækkun REA hjá Kviku sker sig úr. Arion banki áætlar lækkun um 40 milljarða eða 4 pró­sent og Ís­lands­banki um 47 milljarða eða 5 pró­sent.

Kvika gefur ekki upp krónutölu, en 14 pró­senta lækkun gefur til kynna að bankinn hafi verið með hátt hlut­fall lána sem áður voru undir mikilli eigin­fjár­bindingu og nú falla undir aðra flokka nýju reglu­gerðarinnar.

Þar með virðist Kvika vera hlut­falls­lega í betri stöðu til að nýta nýtt reglu­verk til vaxtalækkunar, útlána­vaxtar eða hag­ræðingar í eigin­fjár­stýringu en sam­keppnisaðilar.

Lækkunin hjá Kviku er að mestu til­komin vegna breytinga á áhættu­vogum fast­eigna­tryggðra lána og út­reikningum tengdum eigin­fjár­bindingu vegna rekstraráhættu.

Þar sem áhættu­vog íbúðalána með lágu veðhlut­falli og tekju­berandi íbúðar­húsnæði getur lækkað úr 100% niður í 30 til 60% með nýju reglu­verki skapast mikil lækkun á eigin­fjár­bindingu sem áður þurfti að liggja að baki þessum lánum.

Eigið fé ís­lenskra banka er nú þegar mjög hátt í alþjóð­legum saman­burði og því er lík­legt að féð verði greitt út til hlut­hafa.

„Þeir hafa ekki þörf fyrir það eigið fé sem losnar við breytingarnar til að vaxa og má því segja að það sé lík­legt að þetta verði greitt út með ein­hverjum hætti,” segir Alexander Jen­sen Hjálmars­son, stofnandi greiningar­fyrir­tækisins Akkurs.

Greining Akkurs: Vakin er athygli á því að mat fyrir Íslandsbanka var uppfært fyrir útboð ríkisins en ekki er búið að uppfæra mat fyrir Arion banka og Kviku síðan fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs.

Akkur birti í gærkvöldimat á áhrifum nýja reglu­verksins á Kviku, Ís­lands­banka og Arion banka eftir að Kvika greindi frá áhrifunum um helgina.

Þar sem áhættu­vog íbúðalána með lágu veðhlut­falli og tekju­berandi íbúðar­húsnæði getur lækkað úr 100% niður í 30 til 60% með nýju reglu­verki skapast mikil lækkun á eigin­fjár­bindingu sem áður þurfti að liggja að baki þessum lánum.

Þótt Kvika til­greini ekki sér­stak­lega dóttur­félagið Ortus í Bret­landi í til­kynningunni þá er lík­legt að áhrifin verði mikil þar.

Ortus, sem sér­hæfir sig í fast­eigna­veðlánum, var með um 40 milljarða króna útlána­bók í lok fyrsta árs­fjórðungs.