Auðkenni, útgefandi rafrænna persónuskilríkja, hagnaðist um 51 milljón króna á síðasta ári, en til samanburðar nam hagnaður félagsins 182 milljónum króna árið 2022. Rekstrartekjur námu 695 milljónum króna og hækkuðu um 88 milljónir króna, eða um 14%, frá árinu áður.

Rekstrargjöld félagsins jukust úr 440 milljónum króna árið 2022 í 690 milljónir árið 2023. Laun og launatengd gjöld jukust um 64%, úr 189 milljónum í 310 milljónir. Ársverk voru 16,8 árið 2023 en voru 10,6 árið 2022. Ársverkum fjölgaði því um 58% á milli ára. Þá jókst annar rekstrarkostnaður um 55% á milli ára, úr 232 milljónum árið 2022 í 360 milljónir árið 2023. Fyrir vikið lækkaði rekstrarhagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld úr 168 milljónum árið 2022 í 5 milljónir í fyrra.

Matsbreyting markaðsverbréfa var jákvæð um 40 milljónir og stóð að stóru leyti undir hagnaði síðasta árs. Í ársreikningi kemur fram að umrædd markaðsverðbréf séu lausafjársjóðir hjá fjármálastofnun.

Auðkenni er í eigu ríkissjóðs sem festi kaup á félaginu fyrir um 948 milljónir sumarið 2021. Kaup­verðið nam bók­færðu hluta­fé fé­lagsins sem var um 80% af því fjár­magni sem eig­endur fé­lagsins hafa lagt til fé­lagsins í formi hluta­fjár til þess að þróa lausnina. Lands­bankinn, Ís­lands­banki og Arion banki voru stærstu eig­endur fé­lagsins með um fjórðungs­hlut hver fyrir sig og Síminn átti 16%. Við kaupin var bent á að ríkið gæfi þegar út almenn skilríki, s.s. ökuskírteini og vegabréf, og því eðlilegt að það annaðist einnig útgáfu rafrænna skilríkja.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.