Fjártæknifélagið Aurbjörg hagnaðist um 27 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 45 milljóna tap árið áður.
Rekstrartekjur stóðu í stað milli ára og námu 152 milljónum króna.
Á sama tíma dróst launakostnaður um nærri helming milli ára og nam 47,5 milljónum. Þá dróst annar rekstrarkostnaður einnig saman um nærri helming.
Um síðustu áramót átti Reynir Grétarsson 98,5% hlut í Aurbjörgu í gegnum fjárfestingafélag sitt Info Capital. Ásdís Arna Gottskálksdóttir er framkvæmdastjóri Aurbjargar.
Aurbjörg
2023 |
---|
154 |
254 |
162 |
-45 |