Fjártæknifyrirtækið Aurbjörg hefur sett í loftið fyrstu heildstæðu samanburðarsíðuna fyrir lífeyrissjóði á Íslandi, bæði fyrir samtryggingu og séreign.

Samanburðurinn er sagður veita almenningi aðgengilega og hlutlausa yfirsýn yfir valkosti sína í lífeyrismálum. Hann geri fólki kleift að bera saman ávöxtun, eignasafn og aðra lykilþætti í starfsemi sjóðanna á einfaldan hátt.

„Lífeyrissjóðurinn þinn er mikilvægasta fjárfestingin þín. Við hugsum minna um lífeyrissjóðinn okkar en húsnæðið okkar. Markmið okkar með þessum samanburði er að hjálpa fólki að taka upplýstar ákvarðanir um stærsta sparnað lífsins, lífeyrinn,“ segir Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri Aurbjargar, í tilkynningu.

Bent er á að um það bil fimmtungur allra launa á Íslandi renni til lífeyrissparnaðar. Félagið segir marga engu að síður illa upplýsta um eigin réttindi og þá valkosti sem standa til boða.

Í nýlegri könnun sem Aurbjörg lét framkvæma kom fram að meira en helmingur landsmanna hafi áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni þegar kemur að eftirlaunaárunum. Þá kom einnig fram að rúmlega helmingur þátttakenda telur sig almennt vita lítið um lífeyrismál og hvernig best sé að afla sér upplýsinga um þau.

Framkvæmdastjórar tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) fagna framtakinu.

„Lífeyrissparnaður er ein mikilvægasta fjárhagslega eign fólks og það skiptir máli að allir hafi aðgang að skýrum og samanburðarhæfum upplýsingum. Við fögnum framtaki Aurbjargar sem stuðlar að auknu gagnsæi og bættri yfirsýn yfir lífeyrismál. Þetta er mikilvægt skref í að virkja almenning til þátttöku,“ segir Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.

„Lífeyrisréttindin eru með verðmætustu eignum hvers launþega og við ráðleggjum okkar sjóðfélögum ávallt að kynna sér málin eins vel og kostur er áður en ákvarðanir eru teknar. Það getur hins vegar verið flókið og því er lífeyrisumfjöllun Aurbjargar spennandi nýjung sem mun vonandi nýtast sem flestum til að efla skilning sinn á þeim kostum sem í boði eru í lífeyrismálum á Íslandi,“ segir Harpa Jónsdóttir, framkvæmdastjóri LSR.