Austurhöfn hf. hagnaðist um 772 milljónir árið 2022, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Hagnaður jókst töluvert frá fyrra ári en félagið hagnaðist um 474 milljónir árið 2021.
Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 2.196,9 milljónir króna og var eigið fé félagsins í lok reikningsárs 1.339,2 milljónir.
Einu rekstrartekjur félagsins var sala eigna sem lækkaði úr 7.428 milljónum árið 2021 í 6.741 milljónir árið 2022.
Félagið greiddi niður allar sínar skuldir við lánastofnanir á árinu og fór úr 2.594 milljónum árið 2021 í 0 krónur í fyrra.
Engir starfsmenn eru hjá fyrirtækinu en Apartnor ehf., sem er í eigu fjárfestanna Eggerts Dagbjartssonar og Hreggviðs Jónssonar á 78,99% hlut í Austurhöfn. Arion Banki á 19,61% og Íslenskar fasteignir 1,4% hlut.
Apartnor hf. var stofnað utan um hlut í fasteignauppbyggingu við Austurhöfn í Reykjavík. Íbúðirnar við Austurhöfn fóru á sölu haustið 2020.
Stjórn félagsins leggur til að greiddur verður arður að fjárhæð 800 milljónir króna árið 2023. Á síðasta ári greiddi félagið alls út tvo og hálfan milljarð króna til hluthafa sinna. Einn milljarður var greiddur til þeirra með arðgreiðslu og eftirstandandi einn og hálfur milljarður með lækkun hlutafjár.