Eignarhaldsfélagið Flóki Invest, sem er hluti af Aztiq samstæðunni, stofnanda og stærsta hluthafa Alvotech, og fasteignafélagið Heimar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu og starfrækslu allt að þriggja nýrra leikskóla á höfuðborgarsvæðinu.
Markmiðið er að hver leikskóli taki á móti 50-100 börnum. Staðsetning skólanna verður ákveðin í samráði við sveitarfélög og hagsmunaaðila.
Stefnt er að því að hefja uppbyggingu á fyrsta ársfjórðungi 2025 og að leikskólarnir verði komnir í rekstur á næstu þremur til fimm árum.
Skortur á leikskólamöguleikum hafi áhrif á starfsfólk
Heimar munu annast uppbyggingu og rekstur fasteignanna sem hýsa leikskólana, en Flóki Invest mun afla rekstrarleyfa, semja við sveitarfélög og annast rekstur leikskólanna.
„Alvotech, eins og mörg önnur fyrirtæki, stendur frammi fyrir því að skortur á leikskólamöguleikum hefur áhrif á starfsfólk félagsins. Um 850 manns starfa fyrir Alvotech í höfuðstöðvum félagsins í Vatnsmýri. Þar af eru um 300 starfsmenn með börn í leikskóla, stærstur hluti þeirra í Reykjavík,“ segir í tilkynningu frá Alvotech.
Líftæknilyfjahliðstæðufyrirtækið segist hafa, eftir ítarlega greiningu, komist að þeirri niðurstöðu að besta lausnin væri að stuðla að stofnun fleiri leikskóla.
„Þetta gerir fyrirtækinu kleift að bæta aðstöðu starfsmanna með börn á leikskólaaldri, en verkefnið er einnig hugsað sem hluti af samfélagslegri ábyrgð og stuðningur í verki við nærumhverfið. Aukið framboð af leikskólaplássum getur leyst sameiginlegan vanda og léttir undir með foreldrum í viðkomandi hverfum.“
Samkomulagið var undirritað af Jóhanni G. Jóhannssyni, eins af stofnendum Flóka Invest og Alvotech og Halldóri Benjamín Þorbergssyni, forstjóra Heima.
„Hjá Alvotech sjáum við á hverjum degi hvað skortur á leikskólum er mikið vandamál fyrir starfsfólk okkar. Við vildum finna lausnir á því, en líka aðstoða aðrar fjölskyldur í sömu stöðu, í þeim hverfum þar sem leikskólarnir verða staðsettir. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að styðja við starfsmenn okkar en ekki síður allt nærsamfélagið,“ sagði Jóhann.
„Við hjá Heimum sjáum nú þegar um rekstur fasteigna fyrir einn grunnskóla og fjóra leikskóla og erum mjög spennt að geta nýtt reynslu okkar fyrir starfsfólk Alvotech og börnin þeirra,“ sagði Halldór Benjamín.