Breska varnarmálafyrirtækið BAE Systems hefur tryggt 356 milljóna dala samning við bresku ríkisstjórnina. Fyrirtækið mun þá sjá um að uppfæra kerfin fyrir breska sjóherinn sem greinir nærliggjandi áhættur.

BAE Systems mun þá uppfæra og efla orrustukerfi 20 herskipa, þar á meðal freigátum, tundurspillum og flugmóðurskipinu Queen Elizabeth.

Samningurinn kemur rúmlega viku eftir að Bretar greindu frá því að rússneskt herskip hafði siglt inn í breska lögsögu. John Healy varnarmálaráðherra Bretlands sagði að breski sjóherinn hefði fylgst með rússnesku skipi í breskri lögsögu, fyrst í nóvember og aftur í síðustu viku.

Að sögn varnarmálaráðherra var skipið notað til að afla upplýsinga og kortleggja mikilvæga neðansjávarinnviði. Rússneska sendiráðið í Bretlandi hefur neitað sök.