Bæjarins beztu pylsur hafa opnað sinn þriðja sölustað á Keflavíkurflugvelli – nú í brottfararsal flugvallarins við vegabréfaeftirlitið. Pylsuvagninn er opnaður í svokölluðu „pop-up“ rými í brottfararsal og verður þar til eins árs.

Fyrirtækið hefur rekið útibú í verslun 10-11 í komusal flugavallarins síðan árið 2021 og í sumar bættist við pylsuvagn á biðsvæði í suðurbyggingu sem farþegar á leið til Bretlands, Bandaríkjanna og annarra landa utan Schengen fara um.

Staðir Bæjarins beztu í heild eru því orðnir ellefu talsins. Sjö á höfuðborgarsvæðinu og fjórir á Suðurnesjum.

„Pylsuvagninn sem opnaði í sumar hefur algjörlega slegið í gegn og Bæjarins beztu peysurnar og bolirnir hafa notið mikilla vinsælda hjá ferðamönnum. Pylsurnar eru ekki aðeins gómsætar heldur hentar afgreiðsluhraðinn einstaklega vel fyrir fólk á hraðferð. Við erum ánægð að geta nú aukið framboðið með nýjum vagni í brottfararsal,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslana og veitinga hjá Isavia, í tilkynningu.

© Aðsend mynd (AÐSEND)