Breska flugfélagið easyJet tilkynnti í dag að það muni bæta við flugferðum frá London Gatwick til Akureyrar í apríl 2025 og í október 2025. Áður stóð til að fljúga út mars á næsta ári og hefja flugin að nýju í nóvember.

Flugfélagið verður því mánuði lengur með flug í boði þennan vetur og að auki næsta haust.

Ali Gayward, svæðisstjóri easyJet í Bretlandi, tilkynnti þetta á ráðstefnunni Flug til framtíðar í Hofi í dag. Gayward gat ekki verið viðstödd fundinn en sendi myndbandsupptöku þar sem hún fór yfir það hvernig tekist hefði til með flug easyJet til Akureyrar.

„Við erum mjög ánægð með að tilkynna um þessa viðbót við okkar framboð og fleiri valmöguleika viðskiptavina okkar. Við viljum með þessu mæta vaxandi eftirspurn eftir ferðum til Norðurlands, sem við höfum sérstaklega tekið eftir á milli ára með flugin frá London Gatwick. Með viðbótinni frá Manchester getum við náð til mun fleiri viðskiptavina á Norður-Englandi,“ segir Ali Gayward.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir það mikið fagnaðarefni að fá inn flug þessa tvo haust- og vormánuði, þar sem þau opni á flug í vetrarfríum bæði hjá Bretum og Íslendingum.

„Í apríl hefur verið rólegra hjá norðlenskri ferðaþjónustu og því lengir þetta enn tímabilið þar sem við getum boðið upp á fulla þjónustu og jafnað árstíðarsveifluna,“ segir Arnheiður.