Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Scott Bessent, fullyrti í viðtali við CBS í gær að Bandaríkin muni aldrei verða gjaldþrota.
Yfirlýsingin kemur á meðan vaxandi áhyggjur gera vart við sig meðal fjárfesta vegna stöðu ríkisfjármála, í ljósi umfangsmikils fjárlagafrumvarps sem Trump-stjórnin hyggst innleiða.
„Bandaríkin munu aldrei fara í vanskil. Það mun einfaldlega ekki gerast. Við erum komin á viðvörunarbrautina en við munum aldrei klessa á vegginn,“ sagði Bessent í viðtalinu við Face the Nation en Financial Times greinir frá.
Fjárfestar hafa lýst aukinni óvissu vegna mikillar skuldasöfnunar, ekki síst eftir að lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna úr hæsta flokki í síðasta mánuði.
Umrætt fjárlagafrumvarp, sem kallast „stóra, glæsilega fjárhagsáætlunin“, felur meðal annars í sér hækkun skuldaramma ríkisins um allt að 4.000 milljarða dala.
Frumvarpið hefur verið samþykkt í fulltrúadeildinni og er nú til meðferðar í öldungadeildinni, þar sem sumir þingmenn lýsa yfir efasemdum vegna mikillar útgjaldaaukningar og skuldasöfnunar.
Jamie Dimon, forstjóri JPMorgan Chase, varaði við því í síðustu viku að bandaríski skuldabréfamarkaðurinn gæti „brotnað“ undan þunga ríkisskulda.
Bessent hafnaði þeirri spá og sagði: „Ég hef þekkt Jamie lengi og hann hefur sett fram svona spár alla sína starfsævi. Sem betur fer hefur engin þeirra ræst.“
Óháð samtök um ábyrg ríkisfjármál (e. Committee for a Responsible Federal Budget) telja að frumvarpið, í núverandi mynd, gæti aukið skuldir ríkisins um allt að 3.000 milljarða dala á næstu tíu árum.

© epa (epa)
Trump-stjórnin heldur því þó fram að frumvarpið muni stuðla að auknum hagvexti og draga úr halla. „Við ætlum að hleypa af stað gríðarlegum hagvexti,“ sagði Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, í viðtali við NBC.
Bessent benti einnig á að margir spámenn hefðu ekki tekið með í reikninginn „verulegan tekjuvöxt“ sem hann segir að nýir innflutningstollar forsetans gætu fært ríkissjóði – jafnvel „billjónir dala“.
Áform forsetans um tolla fengu þó áfall í síðustu viku þegar dómstóll úrskurðaði að Trump hefði ekki haft lögheimild fyrir meirihluta tollanna. Hvíta húsið hefur þó fengið tímabundna frestun á gildistöku úrskurðarins.
Howard Lutnick viðskiptaráðherra sagði í viðtali við Fox News að tollastefna forsetans væri óhagganleg.
„Verið róleg – tollarnir eru ekki að hverfa,“ sagði hann. „Forsetanum standa til boða fjölmargar aðrar heimildir, og jafnvel þótt ein verði tekin burt, þá mun hann einfaldlega nýta aðra.“