Aðspurður segir Gísli Kristjánsson, framkvæmdastjóri Monerium, ýmsar spennandi nýjungar í þróun hjá Monerium. Þar á meðal sé lausn sem geri eigendum rafeyris frá fyrirtækinu kleift að skipta einum gjaldmiðli fyrir annan. „Við erum í frábærri stöðu sem útgefandi stöðugleikamynta til að veita slíka þjónustu, enda er hún hvergi í boði eins og staðan er í dag.“

Mikil framþróun á markaðnum sem Monerium keppi á opni að sama skapi á fjölda nýrra tækifæra. „Þetta hefur þróast úr því að fremur fáir aðilar séu alls ráðandi á markaðnum yfir í að hefðbundin fyrirtæki eru farin að nýta sér stöðugleikamyntir til að borga starfsfólki sínu laun og framkvæma greiðslur á milli landa.“

Hann telur að bálkakeðjur og stöðugleikamyntir muni vera svipað mikil bylting fyrir fjármálakerfi heimsins og koma internetsins var fyrir heimsbyggðina við miðlun skilaboða. „Það er verið að samtengja allan heiminn með þessari nýju tækni og sú sýn sem við höfðum við stofnun Monerium fyrir níu árum er loksins að verða að veruleika.“

Hvað svo sem fólki kunni að þykja um Donald Trump Bandaríkjaforseta sé hann lykilmaður á bakvið breytt viðhorf Bandaríkjanna til þessara fjártæknilausna. „Fyrir endurkomu hans í forsetastólinn voru stjórnvöld frekar andsnúin þessum nýju lausnum. Það viðhorf hefur snúist alveg við eftir að hann tók við völdum og eru stjórnvöld í dag mjög jákvæð gagnvart iðnaðinum. Bandaríkin eru t.d. að undirbúa löggjöf til að auðvelda og samræma útgáfu stöðugleikamynta og stórfyrirtæki eins og Meta ráðgera notkun þeirra í greiðslumiðlun. Iðnaðurinn hefur verið að bíða eftir þessu því um leið og búið er að greiða götu iðnaðarins mæta þessi stóru fyrirtæki og gera sig gildandi á markaðnum, sem svo leiðir til þess að hann fer á flug.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.