Viðræður milli fulltrúa Bandaríkjanna og Kína standa nú yfir í London en tilgangur þeirra er að leysa viðskiptastríðið sem stendur yfir milli þjóðanna tveggja. Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, fundar þar með He Lifeng, varaforsætisráðherra Kína.
Á vef BBC segir að útflutningur sjaldgæfra málma frá Kína ásamt aðgengi Kínverja að bandarískum vörum verði ofarlega á dagskrá.
Ríkisstjórnirnar tvær samþykktu að gera tímabundið vopnahlé á viðskiptastríði sínu og draga úr aukningu tolla. Báðar þjóðirnar hafa hins vegar ásakað hina um að brjóta gegn þeim samningi.
Fundurinn í London var ákveðinn í kjölfar símtals milli Donalds Trumps og Xi Jinping í síðustu viku og sagði Bandaríkjaforseti að símtalið hefði verið mjög gott. Símtalið var jafnframt það fyrsta milli leiðtoganna tveggja frá því að viðskiptastríðið hófst í febrúar.
Kevin Hassett, hagfræðingur Hvíta hússins, sagði í gær að hann búist við stuttum fundi sem myndi enda með stóru og sterku samkomulagi þar sem báðar hliðar samþykkja að slaka á viðskiptaþvingunum á mikilvægum sviðum.