Í kjölfar lækkana á bandarískum hlutabréfamarkaði hefur VH hlutfall S&P 500 farið úr 28 í 24. Í S&P Equal Weight vísitölunni, þar sem öll félög vega jafnt, er V/H hlutfallið nú um 19.
Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIV eignastýringar, bendir á að þrátt fyrir lækkanir að undanförnu sé verðlagning bandarískra hlutabréfa enn talsvert há samanborið við aðra markaði sem og í sögulegu samhengi.
„Bandaríski markaðurinn hefur í gegnum tíðina verið verðlagður hærra en sá evrópski, en er nú nálægt efri mörkum sögulega séð. Flæði hefur verið mikið í bandarísk hlutabréf og sér í lagi stærstu félög á markaði sem kemur meðal annars til út af meiri áherslu fjárfesta á vísitölusjóði.“
Hann bætir við að verðlagning á bandarískum fyrirtækjum sé vissulega mjög mismunandi og þó að verðlagning á bandaríska hlutabréfamarkaðnum sé heilt yfir í hærri kantinum þá leynast tækifæri á markaðnum.
„Við erum að horfa upp á leiðréttingu á markaðnum sem er ekki óeðlilegt og má búast við á hverju ári. Það sem er áhugavert við þróun ársins er að flestir markaðir eru upp á árinu nema sá bandaríski og reyndar sá íslenski einnig. Margir alþjóðlegir sjóðir og stofnanafjárfestar hafi komið inn í árið nokkuð yfirvigtaðir í bandarískum bréfum eftir hækkunarfasa undanfarinna ára.
Yfirlýsingar Bandaríkjaforseta hafa aukið áhuga fjárfesta á öðrum mörkuðum og komið af stað flæði yfir í til að mynda evrópsk fyrirtæki með aukinni tiltrú. Hefur þetta ekki eingöngu leitt til lækkunar hlutabréfa heldur einnig talsverðrar veikingar bandaríska dollarans.“

Hann bætir við að ítrekaðar yfirlýsingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um háa innflutningstolla á helstu viðskiptalönd Bandaríkjanna virðast hafa haft mikil áhrif á neytendur og fyrirtæki vestanhafs til skemmri tíma. Það megi m.a. lesa út úr smásölutölum og afkomuviðvörunum fyrirtækja.
„Að stórum hluta má rekja þróun markaða til yfirlýsinga Bandaríkjaforseta, neytendur og fyrirtæki halda að sér höndum enda talsverð óvissa um þróun tollamála þar í landi sem og annars staðar í kjölfarið. Þessu til viðbótar hefur umtalsverður niðurskurður hjá hinu opinbera haft áhrif á bæði fyrirtæki og neytendur þar í landi.“
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.