Í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins er ítarlegur fréttaannáll sem spannar þrjátíu ár. Hér er farið yfir helstu fréttir frá 2015 til 2024.

2015

Kjarasamningar losnuðu hver af öðrum þegar vetri tók að halla. Mjög fljótlega varð ljóst að mikil harka yrði í kjaraviðræðum og við blasti verkfallsvor, sem varð raunin. Hið opinbera hafði mótað ákveðna launastefnu með kjarasamningum við kennara og lækna árið 2014. Þá var samið um 30% launahækkun. Þetta hafði þau áhrif að stéttarfélögin á almenna markaðnum og hinum opinbera miðuðu sínar kröfur við þessa stefnu sem ríkið og sveitarfélög höfðu mótað. Þúsundir vinnandi fólks fóru í verkfall. Hafði þetta víðtæk áhrif víðs vegar í atvinnulífinu. Loks náðust samningar á almenna markaðnum 29. maí.

***

Ferðaþjónustan hélt áfram að blása út á árinu. Tæplega 1,3 milljónir ferðmanna komu til landsins og námu gjaldeyristekjurnar 364 milljörðum króna. Til að setja það í eitthvert samhengi þá námu þær 276 milljörðum árið 2013. Árið 2015 hafði greiðslukortavelta erlendra ferðamanna aukist um 104% frá árinu 2012. Á tæpum tveimur árum hefur ferðaskrifstofum í landinu fjölgað um ríflega 40% og ferðaskipuleggjendum um 34%.

Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson.
Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Bankamenn í fangelsi

Hæstiréttur kvað upp dóm, þar sem fjórir bankamenn voru dæmdir í fangelsi í Al Tahni-málinu svonefnda. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans var dæmdur í fjögurra ára fangelsi, Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var einnig dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi.

***

Stórir áfangar náðust í afnámi fjármagnshafta á árinu. Í júní kynntu stjórnvöld, eftir langan undirbúning, skilyrði sem þrotabú föllnu bankanna þyrftu að uppfylla fyrir lok ársins. Ella þyrftu þrotabúin að greiða 39% af heildareignum sínum í stöðugleikaskatt. Hreyfing virtist komin á viðræður kröfuhafa og stjórnvalda eftir áralanga pattstöðu. Slitabú stóru bankanna þriggja samþykktu loks nauðasamninga undir lok ársins.

***

Fjárhagsstaða sveitarfélaga hélt áfram að versna. Þrettán sveitarfélög voru yfir leyfilegu skuldaviðmiði, sem þýðir að þau skulduðu meira en 150% af reglulegum tekjum sínum. Árið 2014 voru tólf yfir þessu viðmiði. Af stóru sveitarfélögunum var staðan verst í Reykjanesbæ, sem skuldaði ríflega 250% af tekjum sínum.

Úrvalsvísitalan hækkaði gríðarlega á árinu eða um ríflega 40%. Þrjú félög voru skráð í Kauphöllina árið 2015 en það voru fasteignafélögin Reitir og Eik og fjarskiptafélagið Síminn.

2016

Guðni Thorlacius Jóhannesson, prófessor í sagnfræði, var kjörinn forseti Íslands 25. júní. Hann tók við af Ólafi Ragnari Grímssyni, sem hafði gegnt embættinu í 20 ár. Guðni Th. var 48 ára þegar hann tók við embætti og er þar með yngsti forseti Íslands frá upphafi.

Íslenska landsliðið fagnar sigri á Englendingum á EM 2016.
Íslenska landsliðið fagnar sigri á Englendingum á EM 2016.
© european pressphoto agency (european pressphoto agency)

Víkingaklappið varð ódauðlegt

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tók þátt í lokakeppni Evrópumótsins í Frakklandi sumarið 2016 og sló eftirminnilega í gegn. Liðið fór taplaust í gegnum riðlakeppnina og mætti Englandi í 16 liða úrslitum í Nice. Íslenska liðið kom heimsbyggðinni á óvart og sigraði England. Roy Hodgson sagði strax upp störfum sem þjálfari enska liðsins og breskir fjölmiðlar fóru hamförum, sögðu úrslitin mestu niðurlægingu í sögu enskrar knattspyrnu. Ísland mætti gestgjöfunum í átta liða úrslitum en tapaði 5–2. Þrátt fyrir tapið var árangur liðsins stórkostlegur og víkingaklappið öðlaðist heimsfrægð.

***

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, náði sögulegum árangri þegar hún varð fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sér sæti á bandarísku mótaröðinni í golfi (LPGA-mótaröðinni).

***

Panamaskjölin svonefndu höfðu töluverð áhrif hér á landi. Panamaskjölin tengdust flest stofnun leynireikninga og aflandsfélaga í skattaskjólum og mátti rekja fjölda þeirra til Íslands. Daginn eftir að Kastljós greindi frá því að eitt félagið tengdist Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og eiginkonu hans urðu fjölmenn mótmæli á Austurvelli. Þá fór í gang reyfarakennd atburðarás sem endaði með því að Sigmundur Davíð sagði af sér sem forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson tók við. Um haustið hafði Sigurður Ingi síðan betur gegn Sigmundi Davíð í formannskjöri Framsóknarflokksins.

***

Vegna væringa í pólitíkinni var boðað til þingkosninga 29. október. Í kosningunum misstu stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, meirihlutann. Erfiðlega gekk að mynda nýja stjórn en eftir tveggja mánaða þref, í byrjun árs 2017, mynduðu Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð nýja stjórn.

Úrvalsvísitalan lækkaði nokkuð á árinu og var einungis eitt nýtt félag skráð í Kauphöllina en það var Skeljungur. Þrátt fyrir þetta vísuðu allar hagtölur upp á árinu og einkaneyslu jóks um 7%. Velta í smásöluverslun var sambærileg við það sem hún var árið 2007. Tölur frá Isavia sýndu að Íslendingar höfðu ekki ferðast jafnmikið til útlanda síðan árið 2007. Bílasala jókst mikið og nýskráningum fólksbíla fjölgaði um tugi prósenta.

***

Verksmiðja United Silicon í Helguvík var gangsett í lok ársins 2016.

2017

Fjármagnshöft á einstaklinga, fyrirtæki og lífeyrissjóði voru afnumin nánast að öllu leyti 14. mars samkvæmt nýjum reglum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál. Gjaldeyrisviðskipti höfðu verið háð takmörkunum frá hruni bankakerfisins haustið 2008. Innan við viku eftir afnám hafta í mars seldi Kaupþing ehf. 29,18% hlut í Arion banka til erlendra vogunarsjóða. Hlutirnir voru seldir fyrir alls 48,8 milljarða króna í gegnum Kaupskil ehf., dótturfélag Kaupþings.

***

Björt framtíð sleit ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn aðfaranótt föstudagsins 15. september vegna „alvarlegs trúnaðarbrests“ innan ríkisstjórnarinnar. Þegar þetta gerðist hafði ríkisstjórnin verið við völd í níu mánuði. Slitin tengdust uppreist æru, en þann 14. september var greint frá því að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, hefði verið einn umsagnaraðila fyrir dæmdan kynferðisbrotamann sem sótti um uppreist æru árið 2016. Enn og aftur var því boðið til þingkosninga og fóru þær fram 28. október. Björt framtíð, sem hafði átt sex þingmenn, þurrkaðist út. Fékk ekki mann kjörinn. Vinstri græn, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu ríkisstjórn undir forsæti Katrínar Jakobsdóttir, formanns VG. Er þessi stjórn enn við völd.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Costco hristir upp í markaðnum

Töluverðar sviptingar urðu á smásölumarkaði á árinu. Þann 23. maí opnaði bandaríski verslunarrisinn Costco verslun í Kauptúni í Garðabæ og bensínstöð þar skammt hjá. Eftir opnunina fjölmenntu Íslendingar í verslunina og myndaðist umferðaröngþveiti í nokkrar vikur í nágrenni. Seinna á árinu opnaði sænski tískurisinn Hennes & Mauritz (H&M) verslun í Smáralind og í Kringlunni.

***

Saga fyrsta kísilvers á Íslandi var ekki lengi að breytast í hrakfallasögu. Verksmiðja United Silicon í Helguvík var gangsett í nóvember árið 2016, en eftir ógrynni kvartana vegna reyk- og lyktmengunar sem stafaði af bilun í rafskauti í ofni verksmiðjunnar var henni lokað í lok árs 2017 og skömmu síðar fékk fyrirtækið heimild til greiðslustöðvunar.

***

Árið 2017 var Ísland á áttunda ári samfellds hagvaxtar. Hagvöxtur fyrstu níu mánuði ársins mældist 4,3% borið saman við 6,2% á sama tíma árið 2016. Einkaneysluvöxtur var kröftugur og á fyrsta ársfjórðungi urðu tímamót þegar einkaneysla fór í fyrsta sinn upp fyrir hámark ársins 2008.

***

Fasteignaverð hækkaði töluvert á árinu. Mest var hækkunin á íbúðarverði milli janúar og maí á árinu, en í maí nam árshækkun fasteignaverðs 23,5%. Var það mesta tólf mánaða hækkun frá því í janúar árið 2006.

2018

Þau óvæntu tíðindi bárust upp úr miðjum apríl að Guðmundur Kristjánsson í Útgerðarfélagi Reykjavíkur, áður Brimi, hefði keypt öll hlutabréf í eigu Hvals hf., Kristjáns Loftssonar og tengdra aðila, eða um 34%, í HB Granda fyrir 21,7 milljarða króna. Guðmundur settist í forstjórastólinn hjá HB Granda og Vilhjálmur Vilhjálmsson hélt á braut en hann hafði verið forstjóri félagsins frá árinu 2012.

***

Í byrjun sumars var leigufélagið Heimavellir skráð í Kauphöll Íslands. Ekki löngu síðar bættist Arion banki við varð þar með fyrsti viðskiptabankinn til að vera skráður í kauphöllina eftir hrun. Kvika banki var skráður á First North markað kauphallarinnar í mars árið 2018 en ári síðar var bankinn skráður á aðalmarkaðinn, sem þýðir að í dag eru tveir bankar skráðir Kauphöllina.

***

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu var í fyrsta skipti á meðal þátttökuþjóða í lokakeppni HM, sem að þessu sinni fór fram í Rússlandi. Ísland hóf mótið á að gera 1-1 jafntefli við stjörnum prýtt lið Argentínu þar sem Hannes Þór Halldórsson varði eftirminnilega vítaspyrnu frá einum besta knattspyrnumanni sögunnar, Lionel Messi. Liðið tapaði hins vegar fyrir Nígeríu og Króatíu, sem þýddi að það komst ekki í 16-liða úrslit.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Flugfélög í vanda

Seinni helmingur ársins einkenndist af fréttum af flugfélögunum. Icelandair Group sendi frá sér tvær neikvæðar afkomuviðvaranir. Í lok sumars lét Björgólfur Jóhannsson af störfum sem forstjóri og Bogi Nils Bogason tók við. Í ágúst lak út fjárfestakynning fyrir skuldabréfaútboð Wow air, þar sem fram kom að fjárhagsstaða félagsins var langt frá því að vera góð. Í byrjun október varð Primera Air gjaldrþota. Viðræður Wow við Icelandair Group sigldu tvisvar í strand, fyrst í október 2018 og síðan í mars árið 2019. Í millitíðinni reyndi Wow að ná saman með Indigo Partners en þær viðræður skiluðu ekki árangri. Sögu Wow air lauk síðan í mars árið 2019 þegar félagið var úrskurðað gjaldþrota.

***

Greint var frá því í byrjun september 2018 að íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP, sem er útgefandi EVE online, hefði verið selt til suðurkóreska tölvuleikjafyrirtækisins Pearl Abyss fyrir 425 milljónir dollara eða því sem nemur um 52 milljörðum íslenskra króna.

***

Á haustmánuðum 2018 skók „Braggamálið“ svokallaða þjóðina. Þá hafði komið í ljós að kosntnaður vegan endurbóta á Nauthólsvegi 100 var kominn yfir 400 milljónir króna en upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 158 milljónir.

***

Árið 2018 var verksmiðja United Silicon í Helguvík lýst gjaldþrota.

2019

Um miðjan marsmánuð 2019 sagði Sigríður Á. Andersen af sér sem dómsmálaráðherra. Það gerði hún í kjölfar þess að Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) komst að þeirri niðurstöðu að skipan landsréttardómara hefði verið í trássi við landslög og þar með Mannréttindasáttmála Evrópu.

***

Lífskjarasamningarnir svokölluðu voru undirritaðir í apríl 2019. Fram að því höfðu samningaviðræður á almenna vinnumarkaðnum gengið hægt en eftir stjórnvöld komu að samningaborðinu með aðgerðarpakka í 45 liðum náðust samningar. Lífskjarasamningarnir giltu frá 2019 til 2022.

Skúli Mogensen, eigandi Wow.
Skúli Mogensen, eigandi Wow.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Wow air gjaldþrota

Wow air, lággjaldaflugfélag í eigu Skúla Mogensen, var lýst gjaldþrota í lok mars 2019. Fyrst fóru að heyrast fréttir um slæma fjárhagsstöðu félagsins á fyrri helming ársins 2018 og ýmsar aðgerðir sem miðuðu að því að tryggja rekstrarhæfi félagins til framtíðar mistókust. Má í því samhengi nefna 6,4 milljarða króna skuldabréfaútboð og mislukkaðar viðræður um sölu á félaginu; fyrst til Icelandair, svo Indigo Partners og loks á ný til Icelandair. Lýstar kröfur í þrotabúið námu alls 138 milljörðum króna og var stærsta krafan, sem nam 52,8 milljörðum króna, frá flugvélaleigunni CIT Aerospace International.

***

Í kjölfar gjaldþrots Wow air heyrðust sögusagnir um að Skúli Mogensen hygðist endurreisa Wow air, auk þess sem ýmsir aðilar stigu fram með hugmyndir að stofnun nýs lággjaldaflugfélags. Athafnamaðurinn Ástþór Magnússon og hótelstjórinn Hreiðar Hermannsson lýstu yfir áhuga á aðþ´ðor koma að stofnun nýs lággjaldaflugfélags en ekkert varð úr því. Hins vegar fór það svo að Michelle nokkur Ballarin tilkynnti endurreisn Wow air við hátíðlega athöfn á Grillinu á Hótel Sögu. Þar tilkynnti hún að jómfrúarflug hins endurreista flugfélags yrði í október 2019. Enn er beðið eftir jómfrúarfluginu.

***

Kyrrsetning Boeing 737-Max flugvélanna hafði víðtæk áhrif á flugheiminn. Kyrrsetningin kom til vegna tveggja mannskæðra flugslysa með stuttu millibili, en báðar þoturnar sem fórust voru að fyrrnefndri gerð. Kyrrsetningin bitnaði á rekstri Icelandair, en þann 12. mars 2019 tilkynnti félagið að það hefði ákveðið að taka allar Boeing 737 Max vélar sínar úr rekstri. Þær hófu sig ekki á loft á nýjan leik fyrr en í maí 2021 en í millitíðinni leigði Icelandair aðrar vélar.

***

Óhætt er að segja að fréttir Stundarinnar og fréttaskýringaþáttarins Kveiks á RÚV um hið svokallaða Samherjamál hafi sett íslenskt samfélag á hliðina. Fréttirnar voru unnar upp úr gögnum frá Jóhannesi Stefánssyni, fyrrum starfsmanni Samherja. Þorsteinn Már Baldvinsson steig tímabundið til hliðar sem forstjóri Samherja og tók Björgólfur Jóhannsson tímabundið við forstjórastarfinu. Í lok árs 2020 settist Þorsteinn Már aftur í forstjórastólinn.

2020

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Alma Möller landlæknir.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Alma Möller landlæknir.

Heimsfaraldurinn til Íslands

Þann 28 febrúar 2020 greindist fyrsta tilfellið af Covid-19 sjúkdómnum hér á landi. Í kjölfarið varð þríeykið svokallaða landsfrægt, þau Alma D. Möller landlæknir, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Samkomu- og fjarlægðatakmarkanir urðu daglegt brauð og orðið heimavinna fékk nýja merkingu. Fyrirtæki urðu fyrir tekjufalli og veldisvaxtar varð vart jafnt á atvinnuleysisskrá sem og í fjölda smita. Stjórnvöld gripu til ýmissa aðgerða til að reyna að lina höggið. Meðal úrræða sem stjórnvöld komu fram með voru hlutabætur, lokunarstyrkir, viðspyrnustyrkir, brúarlán, greiðsla launa á uppsagnarfresti og svo mætti lengi telja. Í maí gaf ríkið öllum landsmönnum eldri en 18 ára svokallaða ferðagjöf, andvirði 5.000 króna, sem hægt var að nota innanlands.

***

Í fyrsta sinn í Íslandssögunni var landinn að upplifa samdráttarskeið þar sem ríkisfjármálin og Seðlabankinn voru í sæmilegri aðstöðu til að bregðast við. Í byrjun ársins 2020 voru stýrivextir bankans 3% en lækkuðu strax í upphafi árs. Þegar áfallið skall á í mars lækkuðu þeir enn frekar, niður í 1,75%, og í lok árs fóru þeir niður fyrir eitt prósent í fyrsta sinn í sögunni.

***

Kreppan í kjölfari Covid-19 hafði auðvitað áhrif víða í viðskiptalífinu. Ferðaþjónustan varð eðlilega illa úti þar sem sóttvarnir og ferðabönn höfðu mikil áhrif. Um skeið mátti telja komur og brottfarir á Keflavíkurflugvelli á fingrum annarrar handar. Icelandair fór í hlutafjáraukningu, þar sem eftirspurn var meiri en framboð. Félagið fékk jafnframt þrautavaralánalínu með ríkisábyrgð.

***

Engin ný félög voru skráð í Kauphöllina árið 2020. Reyndar fækkaði skráðum félögum því félagið Heimavellir, sem hafði verið skráð á markað vorið 2018 var afskráð haustið 2020. Var það gert eftir að norska Fasteignafélagið Fredensborg AS keypti ráðandi hlut í Heimavöllum. Nafni félagsins var seinna breytt í Heimstaden.

***

Lykill sameinaðist TM á árinu og í lok ársins tilkynnt um kaup Kviku banka á TM og Lykli. Var það gert með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, sem samþykkti samrunan í mars 2021.

***

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björg Gunnarsdóttir náði þeim áfanga á árinu að vera í sigurliði í Meistaradeild Evrópu. Hún var meistari með liði sínu Lyon, sem vann Wolfsburg 3-1 í úrslitaleiknum. Sara Björg skoraði þriðja mark Lyon í leiknum.

***

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir skaust fram á sjónarsviðið á árinu 2020. Í byrjun ársins fékk hún BAFTA-verðlaun fyrir tónlistina í þáttunum Chernobyl og þá varð hún einnig hlutskörpust á Golden Globe verðlaunahátíðinni. Á þessu ári hlaut hún jafnframt Óskarsverðlaun fyrir tónlistina í kvikmyndinni Jókerinn. Hildur varð með þessu fyrst Íslendinga til að hljóta Óskarsverðlaun en áður höfðu Börn náttúrunnar hlotið tilnefningu sem besta erlenda kvikmynd og Jóhann Jóhannsson heitinn hafði í tvígang verið tilnefndur. Annars vegar fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Theory of Everything og hins vegar Sicario.

2021

Bólusetningar vegna Covid-19 fóru á fullt árið 2021. Þeir fyrstu voru bólusettir 29. desember 2020 en næstu mánuði á eftir bauðst almenningi að fara í bólusetningu. Flestir þáðu en aðrir ekki. Um mitt sumar hafði svo tekist að bólusetja það hátt hlutfall landsmanna, auk þess sem staða faraldursins var mjög góð, að óhætt þótti að aflétta öllum samkomutakmörkunum. Það var skammgóður vermir því voru samkomutakmarkanir aftur settar á, svo aflétt, svo settar á og svo framvegis.

***

Landsmenn fengu stundarfrið frá Covid-volæðinu er eldgos hófst í Geldingadölum í Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga um miðbik marsmánaðar árið 2021. Vakti gosið mikla athygli innanlands sem og erlendis og flykktist fólk að gosstöðvunum til að berja eldgosið augum. Á þessum tíma vissi fólk ekki það sem það veit í dag, þ.e. að eldgosatímabil væri hafið á Reykjanesskaga.

***

Það lifnaði svo sannarlega yfir nýskráningum í Kauphöll Nasdaq á Íslandi árið 2021 eftir tíðindalítið ár á undan hvað nýskráningar varðar. Bréf Íslandsbanka og Síldarvinnslunnar voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar um sumarið og á svipuðum tíma voru hlutabréf flugfélagsins Play og tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds skráð á First North markaðinn.

© Morgunblaðið/Unnur Karen (Morgunblaðið/Unnur Karen)

Play í loftið

Nýtt íslenskt flugfélag leit dagsins ljós árið 2021 er Play hóf loks áætlanaflug. Félagið var upphaflega kynnt til sögunnar í lok árs 2019, en ýmislegt varð til þess að félagið hóf ekki flug fyrr en sumar 2021 en eins og gefur að skilja setti Covid-19 faraldurinn þar langstærsta strikið í reikninginn. Arnar Már Magnússon var forstjóri félagsins fyrst um sinn en í apríl var greint frá því að Birgir Jónsson hefði verið ráðinn forstjóri. Þann 24. júní fór jómfrúarflug Play til London.

***

Íslendingar eignuðust nýjan fulltrúa á milljarðamæringalista Forbes viðskiptatímaritsins í dölum talið er Davíð Helgason, einn stofnenda Unity, rataði inn á listann árið 2021. Voru auðæfi hans, sem aðallega fólust í hlutabréfaeign hans í Unity, metin á einn og hálfan milljarð dala samkvæmt Forbes.

***

Alþingiskosningar, sem fóru fram haust 2021, voru að sumra mati einar þær tíðindaminnstu í manna minnum. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri Grænna framlengdi stjórnarsamstarf sitt um fjögur ár til viðbótar.

***

Fyrirtækjamarkaður var líflegur á árinu 2021. Haraldur Þorleifsson seldi fyrirtækið Ueno til Twitter. Goldman Sachs, ásamt öðrum fjárfestum, keypti meirihluta hlutafjár í Advania. Aptos, bandarískt félag í eigu Goldman Sachs, festi kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail. Þá gekk framtakssjóðurinn Levine Leichtman Capital Partners frá kaupum á meirihluta hlutafjár í Creditinfo Group, móðurfélags Creditinfo á Íslandi.

2022

Sumarið 2021 var Íslandsbanki skráður á markað í kjölfar hlutafjárútboðs á 35% hlut ríkisins. Útboðið gekk vel en í lok mars 2022 seldi ríkið 22,5% hlut í viðbót með svokölluðu tilboðsfyrirkomulagi. Aðferðarfræðin var gagnrýnd fór það svo að Ríkisendurskoðun var falið að gera stjórnsýsluúttekt en í henni gagnrýndi Ríkisendurskoðun eitt og annað tengt sölunni en dró þó ekki í efa að fjárhagsleg niðurstaða söluferlisins hafi verið ríkissjóði almennt hagfelld.

***

Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Íslandsbanki fékk risasekt

Fjármálaeftirlit Seðlabankans Íslands fékk til meðferðar meint brot Íslandsbanka á tilteknum ákvæðum laga um markaði fyrir fjármálagerninga og laga um fjármálafyrirtæki. Því máli lauk þann 22. júní með sátt sem fól í sér að Íslandsbanki greiddi 1,2 milljarða króna í sekt, sem er hæsta sekt sem lögð hefur verið á íslenskt fjármálafyrirtæki. Gekkst Íslandsbanki við því að hafa ekki starfað að öllu leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur í verðbréfaviðskiptum vegna framkvæmdar á útboðsins. Sex dögum eftir þetta hætti Birna Einarsdóttir sem bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson tók við. Í dag á ríkið enn 42,5% í Íslandsbanka.

***

Gengið var frá fjórum nýskráningum í Kauphöllina á arið 2022. Ölgerðin reið á vaðið snemmsumars. Örfáum vikum síðar var Nova skráð á Aðalmarkað. Alvotech var í lok júní skráð á First North-markaðinn viku eftir að hafa verið skráð í Nasdaq-kauphöllina í New York. Í byrjun nóvember var svo gengið frá skráningu auðlindafélagsins Amaroq Minerals á First North markaðinn. Alvotech tók svo skrefið af First North yfir á Aðalmarkað í desember.

***

Niceair, nýtt flugfélag í eigu Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar sem gert var út frá Akureyri, var kynnt til leiks í byrjun árs 2022. Hóf félagið áætlunarflug frá Akureyrarflugvelli til nokkurra vinsælla áfangastaða á borð við Tenerife og Kaupmannahafnar.

***

Landsmenn gengu til sveitarstjórnarkosninga í maí. Flest augu beindust að langstærsta sveitarfélagi landsins, Reykjavíkurborg, og hvort meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Pírata og Viðreisnar myndi halda velli. Það fór þó svo að meirihlutinn tapaði tveimur borgarfulltrúum og féll. Óumdeildur sigurvegari kosninganna í borginni var Framsóknarflokkurinn, undir forystu Einars Þorsteinssonar, sem hlaut nærri 19% atkvæða og fjóra borgarfulltrúa. Segja má að Framsókn hafi haldið lífi í meirihlutanum með því að leysa Vinstri græn af hólmi og starfa með Samfylkingunni, Pírötum og Viðreisn.

***

Verðbólga fór á flug árið 2022. Í janúar mældist verðbólga 5,7% og náði hún hámarki í júlí er hún mældist 9,9%. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands brást við með því að hækka stýrivexti. Í byrjun ársins voru stýrivextir 2% en voru hækkaðir í 6% á árinu.

***

Kristrún Frostadóttir kjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í lok október. Hún var ein í framboði. Spennan var öllu meiri í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins sem fór fram nokkrum dögum seinna, þar sem Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson börðust um formannsstólinn. Eftir harða kosningabaráttu var Bjarni endurkjörinn formaður en hann hlaut rúmlega 59% atkvæða.

2023

Jarðhræringarnar á Reykjanesi héldu áfram árið 2023. Undir lok ársins myndaðist kvikugangur undir byggð í Grindavík og var bærinn rýmdur. Í desember hófst svo eldgos og rann hraun yfir hús í bænum og stórar sprungur mynduðust víða. Í byrjun árs 2024 var vinnuslys þegar maður lést eftir að hafa fallið ofan í eina sprunguna, sem verið var að fylla.

***

Töluverður titringur var í kringum Marel á árinu. Þann 7. nóvember steig Árni Oddur Þórðarson til hliðar sem forstjóri og Árni Sigurðsson aðstoðarforstjóri tók tímabundið við. Ástæðan var réttaróvissa sem skapaðist eftir að Arion banki leysti til sín hluta af hlutabréfum Árna Odds í Eyri Invest en langstærsta eign Eyris Invest er í Marel. Skömmu seinna birtist tilkynning frá Marel um óskuldbindandi viljayfirlýsingu bandaríska matvælafyrirtækisins John Bean Technologies Corporation (JBT) um viðræður um yfirtökutilboð.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

180 milljarða sala

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Kerecis var selt á 1,3 milljarða dollara í júlí 2023 eða sem nemur 180 milljörðum króna. Kaupandinn var danska lækningavörufyrirtækið Coloplast. Kerecis, sem var stofnað árið 2009, hefur þróað og framleitt vörur sem tengjast húð- og vefjaviðgerðum. Salan á Kerecis vakti mikla athygli enda má segja að verðmæti fyrirtækisins hafi nánast tvöfaldast á einni nóttu. Kerecis var stofnað af Guðmundi Fertram Sigurjónssyni.

***

Bjarni Benediktsson ákvað að stíga til hliðar sem fjármála- og efnahagsráðherra í byrjun október. Bjarni hafði þá gegnt embættinu í tíu ár. Umboðsmaður Alþingis hafði þá skilað áliti þar sem fram kom að Bjarna hefði brostið hæfi við sölu á 22,5% eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka vorið 2022, þar sem faðir hans hafði verið á meðal kaupenda. Hafði Bjarni stólaskipti við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sem þá var utanríkisráðherra.

***

Flugfélagið Niceair, sem stundaði áætlunarflug frá Akureyri, varð gjaldþrota á árinu 2023. Aðdragandinn var sá að í byrjun apríl 2022 ákvað Niceair að aflýsa öllu flugi og gera hlé á allri starfsemi sinni eftir að félagið varð fyrir miklum skakkaföllum vegna vanefnda erlends samstarfsaðila þess, HiFly. Í lok apríl var svo öllu starfsfólki Niceair sagt upp störfum og í maí ákvað stjórn félagsins að gefa það upp til gjaldþrotaskipta.

***

Augnlyfjaþróunarfélagið Oculis, sem var stofnað árið 2003 af Einari Stefánssyni, prófessor í augnlækningum, og Þorsteini Loftssyni, prófessor í lyfjafræði, var skráð í kauphöll Nasdaq í New York í byrjun mars 2023.

***

Fjögur ný fyrirtæki voru skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland á árinu. Það voru Hampiðjan, Amaroq, Kaldalón og Ísfélagið. Laxeldisfyrirtækið Arnarlax var skráð á First North um haustið.

2024

Ekkert lát var á eldgosum á Reykjanesi en á Sundhnúksgígaröðinni gaus sex sinnum á árinu. Fyrsta elgos ársins hófst þann 14. janúar en þar opnaðist m.a. sprunga upp við byggð í Grindavík og eyðilagði hraunrennslið þrjú hús í bænum. Síðasta gos ársins á svæðinu var í nóvember 2024.

Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason.
Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Nýr forseti kjörinn

Forsetakosningar fóru fram 1. júní. Guðni Th. Jóhannesson, sem hafði gegnt embættinu í 8 ár, gaf ekki kost á sér. Alls voru 12 frambjóðendur í kjöri 2024, sem er met í forsetakosningum á Íslandi. Halla Tómasdóttir viðskiptakona var kjörin forseti með um 34% atkvæða. Halla, sem hafði lent í öðru sæti í forsetakosningunum 2016, tók formlega við embætti 1. ágúst 2024. Eiginmaður hennar er Björn Skúlason.

***

Eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur úr stjórnmálum og tíð ágreiningsmál náði ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG suðupunkti haustið 2024. Ríkisstjórnin sprakk loks þann 13. október þegar Bjarni Benediktsson, sem hafði þá aðeins verið forsætisráðherra í örfáa mánuði, baðst lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti.

***

Þingkosningar á Íslandi fóru fram þann 30. nóvember, þar sem VG þurrkaðist út, náði ekki þingmanni. Samfylkingin endaði með 21% atkvæða og tryggði sér 15 þingsæti. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, fékk stjórnarmyndunarumboð og þann 21. desember myndaði Samfylkingin nýja ríkisstjórn með Viðreisn og Flokki fólksins. Stjórnin er kölluð Valkyrjustjórnin og er Kristrún Frostadóttir yngsti forsætisráðherra í sögu Íslands, 36 ára.

***

Fyrir­tækið Skaginn 3X á Akra­nesi, sem þýska fyrirtækið Baader eignaðist að fullu árið 2022, óskaði eftir því að verða tekið til gjaldþrotaskipta í júlí. Fregnir höfðu þá borist um að veruleg óvissa ríkti um rekstrarhæfi félagsins en eigið fé félagsins var neikvætt um 3,3 milljarða króna í lok árs 2023. Hátt í 130 manns misstu vinnuna. Hópur fjárfesta, undir merkjum félagsins KAPP Skaginn ehf., komst að samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X.

***

John Bean Technologies, JBT gerði hluthöfum Marels valfrjálst yfirtökutilboð í júní 2024, sem var samþykkt 20. desember af 97,5% hluthafa Marel. Fyrirtækin sameinuðust formlega þann 3. janúar 2025. Þann dag hóf nýja sameinaða félagið, JBT Marel Corporation, viðskipti á hlutabréfamörkuðum bæði í Bandaríkjunum (NYSE) og á Íslandi (Nasdaq Iceland) undir auðkenninu JBTM.

***

Langtímakjarasamningar, svokallaðir Stöðugleikasamningar, voru undirritaðir á almennum vinnumarkaði vorið 2024. Samið var um hóflegar launahækkanir með það að markmiði að skapa skilyrði fyrir minni verðbólgu, lægri vexti og stöðugleika. Kjaraviðræður á opinberum vinnumarkaði hófust í kjölfarið en ákveðnar stéttir töldu sig ekki geta samið á sömu nótum og gert var á almenna markaðnum. Kennarar fóru í verkfall áður en samningar náðust í lok febrúar 2025.

***

Landsbankinn keypti tryggingafélagið TM af Kviku banka. Kaupsamningurinn var undirritaður í maí 2024, og eftir að samþykki Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands lá fyrir, fór afhending og uppgjör fram 28. febrúar 2025. Endanlegt kaupverð nam um 32 milljörðum króna.

Nánar er fjallað um málið í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér.