Evrópskir bankar hafa greitt meira en 1,1 milljarð evra í starfs­loka­greiðslur til hátt­settra stjórn­enda frá árinu 2018, sam­kvæmt greiningu Financial Times á opin­berum gögnum og árs­reikningum sjö stærstu fjár­mála­stofnana Evrópu.

Greiðslurnar náðu til um 2.100 svo­kallaðra „material risk takers“ en það eru starfs­menn sem gegna lykil­hlut­verki í áhættustýringu og ákvarðanatöku. Meðaltals­greiðsla við starfs­lok nam rúm­lega 540.000 evrum á hvern ein­stak­ling, sem sam­svarar 77,5 milljónum króna.

Stærstu greiðslurnar hjá Deutsche, HSBC og Santander

Þrír bankar, Deutsche Bank, HSBC og Santander, greiddu saman­lagt um 850 milljónir evra, sem er meiri­hluti heildar­upp­hæðarinnar. Hinir fjórir, Société Généra­le, BNP Pari­bas, Barcla­ys og UBS, greiddu saman­lagt 275 milljónir evra.

Santander greiddi hæstu meðal­upp­hæðina til stjórn­enda, eða 780.000 evrur, en hæsta ein­stak­lings­greiðslan var 11,2 milljónir evra og kom einnig frá Santander árið 2021. Um er að ræða 1,6 milljarða ís­lenskra króna á gengi dagsins.

Deutsche Bank greiddi tvær slíkar greiðslur, hvor um sig að upp­hæð 11 milljónir evra, árin 2018 og 2019.

Greiðslurnar endur­spegla víðtækar breytingar og hag­ræðingu innan evrópska banka­kerfisins.

Deutsche Bank hefur sér­stak­lega beint sjónum sínum að því að fækka í efstu lögum og hefur rekið 685 starfs­menn sem flokkast sem „material risk takers“ frá árinu 2018, sem er um 70% fleiri en HSBC, sem rekið hefur 400 slíka starfs­menn á sama tíma­bili.

Árið 2019 hóf Deutsche um­fangs­mikla endur­skipu­lagningu með það að mark­miði að fækka starfs­fólki úr 92.000 í 74.000 fyrir árið 2022. Í lok árs 2021 hafði fjöldinn lækkað í 83.000, en síðan þá hefur hann vaxið á ný og nálgast nú aftur 90.000.
HSBC hefur einnig gengið í gegnum endur­skipu­lagningu síðustu ár.

Fyrr­verandi banka­stjóri, Noel Quinn, stefndi að því að skera niður 35.000 störf og spara 4,5 milljarða dala ár­lega.

Arf­taki hans, Geor­ges Elhedery, kynnti nýtt skipu­rit haustið 2024 og hefur bankinn nú ákveðið að loka lykil­deildum fjár­festingar­bankans í Evrópu og Bandaríkjunum.

Barcla­ys og UBS með hóflegar greiðslur

Barcla­ys hefur farið aðra leið með ár­legum, minni upp­sagna­hrinum og er nú að fækka um 200 störfum í fjár­festingar­banka sínum, svipað og árið áður.

UBS, sem greiddi lægstu starfs­loka­greiðslurnar til stjórn­enda, greiddi sam­tals 643,7 milljónir evra til næstum 5.700 starfs­manna við sam­runa við Credit Suis­se árið 2024. Meðaltals­greiðslan þar var aðeins 129.000 dollarar á mann.