Menntadagur atvinnulífsins var haldinn í ellefta sinn í morgun og hlaut Bara tala Menntasprotann fyrir árið 2024. Menntaverðlaunin eru viðurkenning til fyrirtækja sem staðið sig hafa vel á sviði fræðslu- og menntamála.
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson afhenti verðlaunin fyrir menntasprota ársins 2023.
Bara tala er íslenskur menntasproti sem hóf starfsemi sína árið 2023 en fyrirtækið nýtir sér gervigreind og íslenska máltækni til að veita fyrirtækjum og stofnunum stafrænt og gagnvirkt íslenskunám fyrir erlent starfsfólk sitt.
Boðið er upp á grunnnámskeið í íslensku fyrir vinnustaði, en einnig er boðið upp á starfstengt íslenskunám sem er þróað í góðu samstarfi við fyrirtækin og er þannig sérsniðið að atvinnulífinu.
„Við vonumst til þess að Íslendingar, eða þeir sem tala tungumálið nú þegar, verði betri í því að bara hlusta á meðan að þeir sem eru að ná tökum á tungumálinu fá svigrúm til að bara tala. Íslenska með hreim er nefnilega tákn um hugrekki,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.